Daglangt í Wogum sá danski prins
Lag Veik er mundin – Bj.Þ. 915
Daglangt í Wogum sá danski prinsvið dándimann, Jón, fékk rætttil þess hispurslauss heljarskinnsheiðursmenn rekja ætt.
Heimildir og samhengi
Ólafur Ketilsson (1864-1947) hreppstjóri, Höfnum, segir - í Sunnlenskum sagnaþáttum Hildar, 1981, bls. 133, og hefur eftir föður sínum sem þá (1834) var 11 ára staddur hjá móðurafa sínum, Jóni sterka Daníelssyni (1771-1855) í Stóru-Vogum, Vatnsleysuströnd, - frá því þegar prinsinn kom í heimsókn og sat daglangt á tali við sterkasta og hraustasta mann sem Ísland hafði alið - að dómi þess merka manns, séra Jakobs Guðmundssonar á Kálfatjörn, síðar Sauðafelli - og hafði afl Egils, fræknleik Gunnars, framsýni Njáls, hyggindi Snorra og hagleik Þórðar hreðu að áliti þess orðvara alþm., Guðmundar Brandssonar, Landakoti, Vatnsleysuströnd og er samhljóða Íslenskum æviskrám III, 84, en þær ritar náinn afkomandi.
Enda var prinsinn ekki fyrr orðinn kóngur, 1848, en hann sæmdi Jón Daníelsson dannebrogsorðu.
Ólafur segir einnig nokkrar sögur sem staðfesta fyrrnefnda dóma og nefnir aðra menn sem rekja sig í 3. lið til Jóns sterka, þ.á.m. Sigvalda Kaldalóns og Eggert söngvara, bróður hans, sem var sterklega byggður. Hér má bæta við í 5. lið dóttursyni Kaldalóns, dr. Gunnlaugi Jónssyni.
Páll Eggert Ólason er 4. frá Jóni og verður þá varla rengd samlíkingin við Njál og Snorra.
Önnur heimild staðfestir sögur Ketils Jónssonar, föður Ólafs, og bætir fleiru við: Merkir Íslendingar, nýr flokkur III, bls. 296, þáttur um Pál Eggert Ólason, ritaður af Jóni Guðnasyni.
Gestur 5, bls. 198 flytur og frásögn Ólafs Ketilssonar af Jóni Daníelssyni með fleiri afrekssögum.
Árni Óla, Strönd og Vogar, 52, 162, telur Jón Daníelsson fyrstan af um 10 stórútgerðarbændum á Vatnsleysuströnd á árunum þegar afli var þar mikill, frá 1818 til 1894, en þá voru bresku togararnir farnir að skrapa upp allan fisk þar - oft með leiðsögn staðkunnugra Íslendinga.
Magnús, sonur Jóns Daníelssonar, tók upp eftirnafnið Waage. M.a. skv. Páli Eggert er Magnús Waage réttur faðir Stefáns sem kallaður var Egilsson og var faðir Sigvalda Kaldalóns, læknis og tónskálds og Eggerts Stefánssonar söngvara (Garðar Hólm?).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Önnur heimild: Gísli Jónsson, Frá foreldrum mínum, bls. 15.
Árni Óla, Strönd og Vogar, 254, segir margt frá Jóni Daníelssyni og m.a. að Vígdís, dóttir hans, hafi verið kona Ketils Jónssonar í Kirkjuvogi, og mætti þá sagan af Jóni og krónprinsinum verið eftir henni höfð en ekki Katli.
Finnur á Kjörseyri: ÞJÓÐHÆTTIR, bls. 150 segir frá Katli Jónssyni og k.h. Vigdísi dóttur Jóns Daníelssonar og kemur þar fram að fyrrnefndur Magnús skipherra (P.Egg.Ól.) sem tók nafnið Waage hafi siglt 1816 og lært sjómannafræði og skipasmíðar og smíðað 100 báta, kvæntur Guðrúnu Bogadóttur Benediktssonar úr Hrappsey. Hann þótti hafa margt frá föður sínum.
Jón Þ. Þór segir frá Jóni Daníelssyni í Sjósókn og sjávarfang, bls. 172.
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
Einnig: HeimildFerlir (opnast í nýjum flipa)
Af Jóni Daníelssyni í Vogum er þáttur í Galdrasögum, bls. 37, útg. 1971, sem tekinn er úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar.