Hjúum allur horfinn agi
Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870
Hjúum allur horfinn agihér má enginn tyftastýmist með börn í eftirdragieða vilja giftast.
Heimildir og samhengi
Espólín verður á efstu árum tíðrætt um agaleysi hjúa. Dæmi:
,,Margt var þá ólag vinnuhjúa og kostavendni, drykkjuskapur og útreiðar; höfðu líka vinnumenn flestir mörg hross í eftirdragi og sumir börn, en varla nein vinnukona sem ei hafði meðferðis barn; var líka mikil kaffidrykkja farin að tíðkast og skraut afar mikið á mörgum og enginn húsbóndi mátti mæla við nokkurt þeirra hálfkveðið orð. Hákon, son Jóns Espólín, bjó á Ystu-Grund og skorti hjú sem aðra, því þau fengust hvergi hvað sem í boði var, og giftist allt og fór að búa”. Saga frá Skagfirðingum III, 6, 17, 21.
Á bls. 30 í ævisögu Helgu Sörensdóttur fjallar Jón Sigurðsson frá Ystafelli um vinnuhjú: ,,Stúlkur kepptu fyrst að því að eignast rúm og rokk, en piltar að eignast kindur, sem þeir áttu á fóðrum hjá bændum. Og alltaf var það einkatakmark allra vinnumanna og kvenna að festa ráð sitt og ná í jarðarhorn til ábúðar".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Hér líka fjallað um Jón Espólín, ásamt Ásgrími Vigfússyni Hellnapresti