Árið 1834

t.d.

3 vísur frá árinu 1834
  1. 1834Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Hjúum allur horfinn agi

    hér má enginn tyftast
    ýmist með börn í eftirdragi
    eða vilja giftast.

    Espólín verður á efstu árum tíðrætt um agaleysi hjúa. Dæmi: ,,Margt var þá ólag vinnuhjúa og kostavendni, drykkjuskapur og útreiðar; höfðu líka vinnumenn flestir mörg hross í eftirdragi og sumir börn, en varla nein…

    Hlusta
  2. 1834Lag: Veik er mundin – Bj.Þ. 915

    Daglangt í Wogum sá danski prins

    við dándimann, Jón, fékk rætt
    til þess hispurslauss heljarskinns
    heiðursmenn rekja ætt.

    Ólafur Ketilsson (1864-1947) hreppstjóri, Höfnum, segir - í Sunnlenskum sagnaþáttum Hildar, 1981, bls. 133, og hefur eftir föður sínum sem þá (1834) var 11 ára staddur hjá móðurafa sínum, Jóni sterka Daníelssyni…

    Hlusta
    Kristján VIIVogar á VatnsleysuströndVogar, Vatnsleysuströnd
  3. 1834Lag: Hvað boðar blessuð nýárssól

    Danaprins kemur, Dillon fer

    dóttur skilur hann eftir hér
    Bernhöft til Knudtsons með krydd og ger,
    kökur og Vínarbrauð við smér.
    1 erindi til viðbótar

    Ferðuðust hér: Sir A. Dillon (1812-1892), írsk-enskur aðalsmaður er eignaðist dóttur með matmóður sinni, Sigríði Ottesen (1800-1878), og reisti henni hús að Suðurgötu 2 - nú á Árbæjarsafni - en yfirvöld heimiluðu ekki…

    Hlusta
    Dillonshús, Suðurgata 2. t.h. fyrir miðjuFriðrik VII. Bakarí Bernhöfts neðst t.h.+7