Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1886
1886
1886

Thorgrímsen hættir hjá Lefolí.

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

TThorgrímsen hættir hjá Lefolí.Landsbankinn til verka.Sálmabók að syngja af ný.Söfnuðir velja klerkakjósa um þá fólkið færsvo friður sé með yður.Á Kúluheiði Björns er bærog borgar skuldir niður.

Glúmur Gylfason · 1886

Heimildir og samhengi

Guðmundur (1821-1895) Thorgrímsen, 4. ættliður frá Finni biskupi, Reykhyltingi, og k.h., Guðríði Gísladóttur Jónssonar (bauka), var verslunarstjóri Lefolii á Eyrarbakka frá1847til 1886.
Lifir orðstír hans og frú Sylvíu og Hússins enn, sjá m.a.: Húsið eftir Lýð Pálsson og Endurminningar Jóns frá Hlíðarenda, eftir Sigurð Þorsteinsson: útg. 1939, bls. 21-23. Lefolii átti Eyrarbakkaverslun 1849-1910. (1852).
Faktor varð nú tengdasonurinn, Pétur Nielsen, en þau Eugenia voru foreldrar Guðmundu Nielsen (1885-1936).

,,Ég (Páll Ísólfsson (1897) var innanbúðar hjá Lefoliiverslun tvær sumarkauptíðir ... þar voru hundruð manna er biðu eftir afgreiðslu. Þar var líf í tuskunum! Þegar lest kom fékk hver maður númer í versluninni svo séð yrði í hvaða röð menn skyldu hljóta afgreiðslu ... allt skyldi fara riktuglega fram. ...Þeir sem óheppnir voru þurftu stundum að bíða í viku eða meira en það. Aðkomufólkið hafðist við í tjöldum og fékk ókeypis kaffi hjá versluninni tvisvar á dag".
(Sjá til samanburðar 1639).
Á innanbúðarmyndinni sjást, frá vinstri: Berentsen, Pálína Pálsdóttir, Tómas Hallgrímsson, Guðmunda Nielsen.
SkjalSkemman (opnast í nýjum flipa)

Um Eyrarbakkaverslun, á tíð Guðmundar Thorgrímsen og lengur, virðist ekki gilda það sem Halldór Laxness segir ugglaust með réttu í Gerska ævintýrinu, bls. 40: ,,búðarþjónar höfðu þann sið, sem til skamms tíma hefur viðgengist á Íslandi, að líta á sig sem æðri verur en kaupnautinn og svara afgæðingi eða afgreiða af náð".

Landsbanki Íslands stofnsettur ári fyrr, en tók til starfa 1. júlí. Bankastjóri Lárus Sveinbjörnsson, sem Þórður Sveinbjörnsson háyfirdómari (1827) ættleiddi þegar hann kvæntist móður hans, Kristínu Cathrine Lauritzdóttur Knudsen. Lárus átti sömu móður og tónskáldið Sveinbjörn, en frá Knudsensystrum eru fjölmargir tónlistarmenn komnir. Lárus var tengdasonur hjónanna Thorgrímsen í Húsinu á Eyrarbakka.
Landsbankinn varð síðan til húsa í Bankastræti 3, nú verslunin Stella. Það hús var reist 1881.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Viðbætir við Sálambók 1801 kom 1861 og ný bók 1871 og loks langlíf sálmabók 1886, en voru án nótna.
Öflug kynslóð sálmaskálda kvaddi sér hljóðs með Sálmabókinni 1886: Séra Björn Halldórsson í Laufási, (Sjá, himins opnast hlið), séra Helgi Hálfdánarson, forstöðumaður Prestaskólans, (Dauðinn dó, en lífið lifir), séra Valdimar Briem, Stóra-Núpi, vígslubiskup, (Í dag er glatt í döprum hjörtum), séra Matthías Jochumsson, (Ó, Guð vors lands), séra Stefán Thorarensen, Kálfatjörn, (Mín sál, þinn söngur hljómi), séra Páll Jónsson, Viðvík, Skagafirði, (Ó, Jesú, bróðir besti).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Söfnuðir fengu nú kosið milli 3ja prestsframbjóðenda sem stiftsyfirvöld, þ.e., biskup, amtmaður og landshöfðingi, völdu úr hópi umsækjenda. Fór fyrsta kosning fram í Oddaprestakalli 1887. Kjörinn Skúli Skúlason, Gíslasonar pr. Brbst. Fljhl., og k.h., Guðrúnar Þorsteinsd. pr. Reykholti Helgasonar (1865).
P. E. Ól., Saga Íslendinga V, 217, úrdráttur:
Skv. kirkjuskipun Kristjáns lV., lögtekin á Íslandi 1622, skyldu sóknarmenn velja 7 menn til prestakjörs er prestlaust varð. ,,...sóknarmenn kvöddu til presta er þeir vildu fá eða til þeirra leituðu um kosning og sömdu köllunarbréf ...og sendu biskupi. Ákvæðinu um tölu kjörmanna var raunar jafnan ekki fylgt".

Björn Eysteinsson (1849-1939) bjó um sig og fjölskyldu 1886 til 1890 á Réttarhóli í Forsæludalskvíslum, 4urra tíma lestargang frá fremsta býli í Vatnsdal, veiddi fugla, (álftir þá ekki friðaðar) og silung og kom skuldlaus til byggða eftir harðindin. Skrifað ævisögu sína: ,,... seldi hana (kúna) um vorið upp í eina skuld, því ég sá að ég gat ekki haft lengur not af henni kálflausri (ekkert naut þar) og feginn að losna við skuldina en síður kúna ...hún (Helga) hafði barn á brjósti og ekkert annað en grasalím til að éta, vötn öll á gaddi og ómögulegt að fá björg úr þeim, sigling engin (hafþök) og ærnar þoldu ekki að fært væri frá lömbunum því ég varð oft að gefa  þeim inni".
Þau Björn fengu Grímstungu til ábúðar 1899 og hófu ábatasaman hjarðbúskap með sauðfé og hesta ásamt sonunum, Þorsteini og Lárusi, sem fæðst höfðu á Réttarhóli og urðu landskunnir menn líkt og margir afkomendur og frændur Björns Eysteinssonar, t.d. þeir sem kenndir eru við Guðlaugsstaði.

Í 3ja bindi ævisögu sinnar telur Hulda Á. Stefánsdóttir Björn stórbrotnasta Húnvetning sinnar samtíðar.

Ingunn Jónsdóttir frá Melum getur Björns í ævisögu sinni, bls. 228, og þeirrar tilgátu að hann sé fyrirmynd Kiljans að Bjarti í Sumarhúsum. Aðrir benda á að Björn hafi kunnað að meta kúna, etið sinn silung með góðri lyst og sögulokin hvor með sínum hætti.

Ágúst Jónsson, b. Hofi, Vatnsdal, segir í ævisögu II, bls. 184: ,,þótt Birni ...væri í lófa lagið að afla sér matar með kindatöku þegar hungur svarf að lagðist aldrei á hann suðaþjófnaðarorð ...heiðarleiki hans var aldrei dreginn í efa".

Orðstír Björns lifir enn, en þótt eiginkonan, Helga Sigurgeirsdóttir, færi (hálf)nauðug í útlegðina og lægi hvorki á grenjum né græfi sig í fönn við veiðar, þá verðskuldar hún síst minna lof fyrir að þrauka og fæða börn hjálparlaust við þessar aðstæður á harðindaskeiði sem flæmdi þúsundir úr landi.
Vefurhbs.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Aðrar heimildir og tilvísanir:
Indriði Einarsson, Séð og lifað, Endurminningar, bls. 235.
Lýður Pálsson: Húsið á Eyrarbakka, bls. 40-45.
Valtýr Stefánsson, Myndir úr þjóðlífinu, Páll Ísólfsson segir frá.
Sjálfsævisaga Björns Eysteinssonar 1980;
Lárus í Grímstungu, Bókaforlag Odds Björnssonar 1981, bls. 13.
Hannes Pálsson: Vopnaskipti og vinakynni, bls. 24 og 31.

Myndir

← 1885hún1887 →Hart nú þjarmar Þingið að