Sýslumaður setti á vetur
Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903
Sýslumaður setti á veturog sinnti ei fróðleik þeimað römm er sú taug sem togað geturtólf hundruð sauði heim.
Heimildir og samhengi
Sm. Árni Gíslason (1820-1898), e.t.v. fjárríkastur allra þá, rekur sauðfé, 1.207 að tölu, frá Kirkjubæjarklaustri til Krýsuvíkur.
Féð strauk allt austur aftur en fórst í vötnum á leiðinni. 60 komust þó austur undir Eyjafjöll og ein ær með lambi og einn sauður allt til Klausturs.
Því er við hæfi að birta í óleyfi mynd af vefnum Visitklaustur.is af kindum á leið þangað.
Vefuradventures.com (opnast í nýjum flipa)
Árni var sonur Gísla (1786-1860) prests til Staðar- / Gilsbakka, Gíslasonar og Ragnheiðar (d. 55 ára 1846) Vigfúsdóttur sm. Hlíðarenda, þ.e., systir am. Bjarna skálds Thorarensen. Bróðir Árna, sr. Skúli þjóðsagnaritari á Breiðabólsstað, Fljhl. kemur við sögu1865.
Ferjutollur Árna, greiddur í Óseyrarnesi var 7 fullorðnar kindur - aðra leiðina!
Heimild: Jón Pálsson, Austantórur II, 18.