Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1880
1880
1880

Hólaskóli í Hörgárdal

Hljóðbrot0:00

Lag Kálfar tveir í kúamynd

HHólaskóli í HörgárdalHjaltalín kenndi og fleirifljótlega þó fært í talað flytja á Akureyri.

Glúmur Gylfason · 1880

Heimildir og samhengi

Stofnaður alþýðuskóli fyrir unga karlmenn á Möðruvöllum í Hörgárdal.
Ein stúlka sótti skólann, Jórunni Jónsdóttur, og má lesa þar um í Gesti 5, Gils Guðmundssonar.
Skólastjóri Jón Hjaltalín (1840-1908), þá Stefán Stefánsson, d. 1920.
Hólaskóli starfaði síðast 1801-1802. Þá gætti enn í hag landsins móðuharðindanna og jarðskjálftans sem lagði Skálholt í rúst að viðbættum hörmungum Napóleonsstyrjaldanna sem gerðu Danmörk að lokum gjaldþrota 1813.
Skálholtsskóli var fluttur til Reykjavíkur 1786 og nú nefndur Reykjavíkurskóli hinn fyrri á Hólavelli. Stóllinn fór þangað líka með Geir biskupi Vídalín 1797.
Hólaskóli var sameinaður Reykjavíkurskóla sem flutti að Bessastöðum 1805. Norðlendingar voru þar með sviptir sínum Hólaskóla og kenndu þeim um sem lagt hafði flutninginn til við stjórnina, - sjá skýringu við 1802.
Eftir næst síðasta Möðruvallabrunann – af sjö, þann 1902, var Möðruvallaskóli fluttur til Akureyrar og hét í fyrstu gagnfræðaskóli. Skólastjóri eftir Jón Hjaltalín, 1908, varð Stefán Stefánsson (1863-1920), náttúrufræðingur frá Heiði í Gönguskörðum. Nánar í Eldi á Möðruvöllum, bls. 842 og

AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Gunnar Ólafsson, Endurminningar, bls. 99: ,,Möðruvallaskólinn og Flensborgarskólinn áttu miklu drýgri þátt í sönnu menningarstarfi þjóðarinnar á síðasta fjórðungi 19. aldar en menn hafa yfirleitt gert sér grein fyrir. Hið sama mátti segja um búnaðarskóla Hermanns Jónassonar (Hólum) og Ólafsdalsskólann. Menn úr skólum landsins dreifðust um sveitir landsins og urðu margir hverjir fyrirmyndarbændur og á ýmsan hátt leiðtogar þeirra, sem minna höfðu lært. ...Í gagnfræðaskólana fóru aðeins á þeim tímum námfúsir menn og greindir, oftast um tvítugsaldur, og ...ekki bara, eins og nú á sér stundum stað, að vera í skólanum, heldur til þess að afla sér nauðsynlegs fróðleiks".

En í Ísafold skrifar Einar H. Kvaran 1898 og 1899, ...,,bændasynir fóru á búnaðar og Möðruvallaskólann og komu aftur fullir af lærdómsbelgingi".

Myndir

Einnig frá árinu 1880

  • Sýslumaður setti á vetur
  • Þeir er sáu í því akk:
  • Norðmenn síld með netum
  • Frambjóðandinn fann á sér
← 1880Sýslumaður setti á vetur1880 →Þeir er sáu í því akk: