Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1880
1880
1880

Þeir er sáu í því akk:

Hljóðbrot0:00

Lag Fljúga hvítu fiðrildin

ÞÞeir er sáu í því akk:akta, nema, horfabetur þóttu búnir í stakkúr bændaskóla Torfa.

Glúmur Gylfason · 1880

Heimildir og samhengi

Torfi Bjarnason (1838-1915), sá er 1667kynnti nýjan og betri ljá , skoskan, stofnar og stjórnar bændaskóla í Ólafsdal í Gilsfirði.
Skólinn starfaði til 1907. Námstíminn var tvö ár og 5 til 6 nemendur teknir inn árlega.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Næstu þrjá áratugina komu smám saman til sögu á Íslandi handverkfæri úr járni, skilvindur, hlöður með bárujárnsþaki, plógar og gaddavírsgirðingar. Bændaskóli byrjaði á Hvanneyri 1889 - Heimildir: Úr byggðum Borgarfjarðar Kristleifs Þorsteinssonar II, 129, 132 og

Faðir minn, bóndinn, bls. 35: ,,...Hann (Torfi) hafði smiðju og smíðaði bæði tré og járn. Smíðaði hann kerrur, jarðvinnslutæki og fleira. Innflutt jarðvinnslutæki, ...plóga, herfi, ljái o.fl. lagaði hann að íslenskum aðstæðum. Kerrur frá Ólafsdal voru víða til og voru til mikils léttis við búverkin".

Vefurolafsdalur.is (opnast í nýjum flipa)

Ágúst Helgason í Birtingaholti, Endurminningar, bls. 142: ,,Á uppvaxtarárum mínum (f.1862) voru allir búnaðarhættir með sama sniðinu og á miðöldum. Vagnhjól hafði enginn, ...því síður plóg, ...en hætt var að binda ljáina í orfin með ól úr íslensku leðri, ...orfhólkana mun hafa fundið upp síra Þórður Árnason í Klausturhólum (1803-1862) og víðar, hálfbróðir Jóns þjóðsaganútgefanda, en albróðir Ingibjargar, ömmu Ólafs Davíðssonar fræðimanns", sjá 1903.

Frá bls. 146 telur Ágúst að deyfðina, áhuga- og framtaksleysið, hugsunarhátt og framkomu fólks megi rekja til húsakostins.
Um 1860 voru moldargólf á öllum baðstofum í Hrunamannahreppi nema tveimur, sem höfðu fjalagólf. Kunna þó að hafa verið fleiri, sbr. það, að þegar ekið hafi verið 14 hjólbörum af gólfskán (skít) út úr baðstofu prestsetursins í Goðdölum komu gólffjalir í ljós. Sjá hér annars staðar við1880.
Þökin voru eins og á fénaðarhúsum, míglek. Líðan fólks eftir því.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Hannes Pétursson, Heimildarþættir III, 134: ,,um sveitir brúkaði fólk lýsi eða hrossafeiti til ljósmetis, ... en af því lagði reyk eigi alllítinn. Af reyknum urðu baðstofur æði svartar og héldu þeim lit æ síðan, því aldrei voru þær þvegnar upp um, sá siður var ókominn í landið (um miðja 19. öld). Samt var stundum brugðið upp vendi og hégóma sópað af loftviðum. Gólfskúringar, þar sem fjalagólf var á annað borð, þóttu tildur".

Ekki voru allir bændur þess hvetjandi að synirnir hyrfu frá búskapnum til (búfræða)náms. Um aldir höfðu niðjar lært iðn foreldra heima, tekið við af þeim og séð þeim farborða í ellinni enda engir lífeyrissjóðir. Um stúlkur var ekki rætt. Tól og tæki til búskapar höfðu verið hin sömu s.l. 1000 ár, en nú tók það að breytast eftir því sem iðnbyltingin nam hér land.
Sjá 1892, þáttinn um Flensborgarskóla.

Magnús Friðriksson á Staðarfelli segir í Minningabók, bls. 69-70 ,,...fengu þeir sem luku námi við búnaðarskólann titilinn ,,búskussi" ...stóðu margir í þeirri trú, að í skólanum væru menn vandir á iðjuleysi, svo að þeir hvorki kynnu né nenntu að vinna eftir skólaveruna".

Sigurður Thoroddsen, Skúlason, segir í æviminningum, bls. 202 - og á við almenningsálit gagnvart verkfræðingum: ,,Vorum við (verkfræðingar) engu betur settir en búfræðingarnir sem komu úr námi upp úr aldamótunum". Nefnir Sigurð Þórólfsson (1869-1929), ,,Flensborgara" og búfræðing frá Danmörk og skólastjóra á Hvítárvöllum og tilfærir leirugar níðvísur um búfræði hans. Síðan: ,,Ekki bætti úr skák að menn eins og Tryggvi Gunnarsson (sbr. 1891) og Jónas Jónsson frá Hriflu gerðu sitt til að níða niður stéttina (verkfræðinga). Jónas ...hampaði brjóstvitinu ...þessi áróður féll í góðan jarðveg meðal alls almennings".
Telur Sigurður að þeir tvímenningarnir hafi talað gegn eigin sannfæringu, en þeir áttu hvor sinn verkmenntaða keppinaut: Sigurð, bróður Skúla alþm. Thoroddsen, og Jón Þorláksson, formann Íhaldsflokksins. Sem dæmi um afstöðuna til menntunar nefnir S.Th. skrýtluna af verkfræðingnum sem pissar upp í vindinn.
Ef búfræðingi búnaðist vel var sagt að hann hefði aldrei getað lært neitt.

Myndir

Einnig frá árinu 1880

  • Sýslumaður setti á vetur
  • Hólaskóli í Hörgárdal
  • Norðmenn síld með netum
  • Frambjóðandinn fann á sér
← 1880Hólaskóli í Hörgárdal1880 →Norðmenn síld með netum