Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1776
1776
1776

Í Skaftafellssýslu skrímsli sást

Hljóðbrot0:00

Lag Vorið góða, grænt og hlýtt

ÍÍ Skaftafellssýslu skrímsli sástskoðað í eyktartímaþví um líku þar að dástþegar aðrir kíma.

Glúmur Gylfason · 1776

Heimildir og samhengi

Djáknaannáll VII, 198: ,,Á einum sandi við Feðgakvísl í Meðallandi sást skrýmsli, á hvört menn horfðu í eyktartíma." (3 klst.).

Skaftfellingar lifa í návígi við síbreytilegt hafnlaust land og strönd á aðra hönd, en á hina tilkomumikið eldvirkt hálendi innan um háskaleg vatnsföll.

Hannes Pétursson, Frá Ketubjörgum til Klaustra, bls. 49: ,,Á miðöldum var fjalllendi Íslands albyggt tröllum, forynjum og öðrum andskotum”.
Í Ritsafni sínu telur Eyjólfur Guðmundsson frá Hvoli (1870-1954) heimabyggð sína, Mýrdal, miðpunkt þjóðtrúar á tröll, álfa og (ó)vættir.

Halldór Laxness: ,,Allt fram á 19. öld þóttu íslendíngum fjöllin ljót. Ekki var látið við sitja að Búlandstindur væri ,,furðu ljótur", heldur þótti Mývatnssveitin með fjallahríng sínum og vatni viðurstyggilegt pláss".

Sem brautryðjandi - í bókstaflegri merkingu - varð Brandur Jón Stefánssona, bílstjóri (1906-1994) í Vík þjóðsagnapersóna í lifanda lífi, sjá 1928, 1907, og gekk undir nafninu Vatna-Brandur enda ók hann Ford vörubíl af árgerð. 1926 um flestar óbrúaðar ár á Suðurlandi aðrar en stórfljót.
Kjartan Ólafsson, Verslunarsaga Vestur-Skaftfellinga II, 263:
,,Aldrei fyrr hafði bíl verið ekið sem leið liggur með bæjaröðinni undir Eyjafjöllum. Er bíllinn fór fram hjá Hvammi var verið að lesa húslesturinn. Börnin fóru þó á stjá þegar heyrðist til bílsins og er þau sáu hann skreiðast eftir þjóðgötunni hrópuðu þau upp að það væri að koma skrímsli. Allt fólkið þusti út á hlað nema móðir bóndans, Þuríður Jónsdóttir, fædd 1852, ...hélt lestrinum áfram"..
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Sá órómantíski Jón Sigurðsson segir 1860: ,,Látum vera, að mörg trú sé hjátrú og hindurvitni; vér getum ekki að því gjört, að oss finnst þessi trú vera samfara einhverju andlegu fjöri og skáldlegri tilfinningu, sem ekki finnst hjá þeim, er þykjast svo upplýstir að trúa engu".
Heimild: Ingi Sigurðsson, Erlendir straumar, bls. 151.

Sambærileg trú fyrri tíðar Íslendinga á álfa, tröll og útilegumenn í óbyggðum er ótti erlendis við yfirnáttúrulegar skógarverur: dísir, risa, álfa og dverga. Um slíkan skóg sögðu Danir að hann væri forhekset.

Gestur I, Eiríkur Briem (1846-1929): Æskuminningar, bls. 20: ,,Yfirleitt voru menn mjög trúgjarnir. Vinnufólkið á Espihóli trúði til dæmis öllu sem sagt var í Fornaldarsögunum, rímum og þjóðsögum, og gerði engan greinarmun á því og hinu, sem stóð í hinum bestu Íslendingasögum. ... Því datt ekki í hug að efast um að flestar sögur um tröll og huldufólk, útilegumenn og drauga væru sannar".

AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1776

  • Ómalað korn og kvarnarsteinn
  • Með Könum og enskum engin sátt
← 1776Með Könum og enskum engin sátt1777 →Stjórnin hefur því komið í kring