Árið 1776

t.d.

3 vísur frá árinu 1776
  1. 1776Lag: Dvel ég í draumahöll

    Ómalað korn og kvarnarsteinn

    kaupsetningin nýja
    í búðum finnist fleiri en einn
    þá færri kaupmenn rýja.
    Upp er tekin alin ný
    ei skal brúka reislu
    tólf menn finnist flestir í
    ef fátækir halda veislu.

    LÍFTAUG LANDSINS, bls. 216: ,,Ný verðlagsákvæði voru sett árið 1776. Samkvæmt þeim skyldi verð reiknað í kúrantríkisdölum í stað gildra fiska. Við samningu þessara ákvæða var tillit tekið til verðs afurðanna á mörkuðum…

    Hlusta
    12 börn í afmælisveisluReisla
  2. 1776Lag: Dvel ég í draumahöll

    Með Könum og enskum engin sátt

    óskum friði dveljist
    að verð á fiski haldist hátt
    hernaðurinn eljist
    fast vér megum sækja sjó
    sjö ár góð í vændum
    kaupir fisk af bændum.

    4. júlí: Sjálfstæðisyfirlýsing Bandaríkjanna. https://is.wikipedia.org/wiki/Sj%C3%A1lfst%C3%A6%C3%B0isyfirl%C3%BDsing_Bandar%C3%ADkjanna Ný kaupsetning 1776 var Íslendingum í hag segir Öldin átjánda enda skollið á…

    Hlusta
    Saltfiskur+2
  3. 1776Lag: Vorið góða, grænt og hlýtt

    Í Skaftafellssýslu skrímsli sást

    skoðað í eyktartíma
    því um líku þar að dást
    þegar aðrir kíma.

    Djáknaannáll VII, 198: ,,Á einum sandi við Feðgakvísl í Meðallandi sást skrýmsli, á hvört menn horfðu í eyktartíma." (3 klst.). Skaftfellingar lifa í návígi við síbreytilegt hafnlaust land og strönd á aðra hönd, en á…

    Hlusta
    Skrýmsli?Þorvaldur Friðriksson skrýmslafræðingur