Með Könum og enskum engin sátt
Lag Dvel ég í draumahöll
Lag kóngs & Co
Með Könum og enskum engin sáttóskum friði dveljistað verð á fiski haldist hátthernaðurinn eljistfast vér megum sækja sjósjö ár góð í vændumkaupir fisk af bændum.
Heimildir og samhengi
4. júlí: Sjálfstæðisyfirlýsing Bandaríkjanna.
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)
Ný kaupsetning 1776 var Íslendingum í hag segir Öldin átjánda enda skollið á ,,Frelsisstríð" nýlendna Englendinga í Ameríku og hækkaði þá fiskverð í Evrópu þegar fiskur barst ekki frá Nýfundnalandi.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Verðbólga hafði varla verið til í 4 til 5 aldir innanlands á Íslandi þar sem verslað var með vöruskiptum.
Frá 1702 var fiskverð til kaupmanna um ,,fimmti hluti þess sem fékkst fyrir hann á erlendum markaði ...1776 var fiskur rösklega tvöfaldaður í verði”, segir í Vestrænu Lúðvíks Kristjánssonar, bls. 198.
Þessi verðlagning var gerð til að bæta kaupmönnum og bændum tapið á prjónlesinu.
Lúðvík reiknar á bls. 196, að þegar bóndi fær 1 rd. og 12. sk. fyrir prjónasokka hafi hann kostað til þess 1 rd. og 82 sk.
Tilvísun: Upp er boðið Ísaland - Gísla Gunnarssonar, 3. og 12. kafli; Ný Íslandssaga Björns Þorsteinssonar bls. 138: Lúðvík Kristjánsson, Vestræna bls. 188.
Saga Íslendinga, V, 218: ,,Hófst nú (1776) stórgróða- og spákaupmennskuöld í Danmörk ...Markaður fyrir íslenskar framleiðsluvörur nógur og verðið hátt ...Mátti og kalla að Íslendingar væru ánægðir með þau kjör sem konungsverslunin bauð þeim. En hér varð skjótur endir á. Árið 1783 lauk styrjöldinni. ..Stórkostlegt verðfall steðjaði að".
Versnuðu þá viðskiptakjör kaupmanna um fjórðung auk þess sem lausakaupmenn sem versluðu um borð í skipum sínum fleyttu rjómann af viðskiptunum segir Gísli Gunnarsson í Líftaug landsins.
Um þetta leyti (frá 1764 í smáum stíl) byrja kaupmenn að láta salta fisk, en jafnan þurrkaður og hertur áður (Lúðvík Kristjánsson, Vestræna, 200).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Vefurbritannica.com (opnast í nýjum flipa)
FréttBændablaðið (opnast í nýjum flipa)
Wikivand: ,,Bandaríkin rekja uppruna sinn til sjálfstæðis- yfirlýsingarinnar frá 4. júlí 1776 þegar þrettán breskar nýlendurWikiwand (opnast í nýjum flipa) lýstu yfir eigin frelsi og sjálfstæði frá Breska heimsveldinu. Nýlendurnar höfðu betur í Frelsisstríði BandaríkjannaWikiwand (opnast í nýjum flipa) en það var fyrsta nýlendustríðið þar sem nýlendan hafði betur en herraþjóðin".
Á lokametrunium var fellt út ákvæði sem gagnrýndi þrælahald. Annars er í yfirlýsingunni fyrst bryddað upp á jafnrétti allra (karl)manna, rúmum áratug fyrr en í frönsku býltingunni og sex árum eftir að hreppstjórum á Íslandi er ekki leyft að ganga í frakka, - sjá 1770, og einni öld áður en Kristleifur Þorsteinsson segir, 1771 að í Borgarfirði séu vaðmálsklæddir þúaðir en menn í klæðisbuxum þéraðir.
1755 kemur jafnréttishugmyndin fyrst (?) fram hjá franska ,,upplýsingarmanninum Diderot, sjá;
· Þýða þessa síðutranslate.google.com (opnast í nýjum flipa)