Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1777
1777
1777

Stjórnin hefur því komið í kring

Hljóðbrot0:00

Lag Ef þú bíður eftir mér

Lag Kálfar tveir í kúamynd

Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

SStjórnin hefur því komið í kringað kaupmenn versli ársins hringog vill nú reyna að setja í svingsumar og vetur Íslending.

Löngum þjóð um fortíð fróðog feril Njáls og Marðaren nú skal efnt í annan sjóðsem efnishyggju varðar.

Ræs! Nú skuluð fram úr fletifeður, synir, bræðurhættið þið að liggja í letiog lesa fornar skræður.

Þeir sem geta kaupa kaffikomin upp ný dellakandís út í kaupmenn skaffiog kenni upp á hella.

Glúmur Gylfason · 1777

Heimildir og samhengi

Landsnefndin fyrri, stofnuð 1770, lagði fram fjölmargar breytingar sem ætlað var að bæta ástandið í landinu og komu til framkvæmda frá 1776. Fækkaði þá helgidögum kirkjunnar sem boðað var 1770, en illa gengið fram. T.d. höfðu stórhátíðarnar verið þríhelgar. Byrjar verslun konungs í Flatey 1777 sem ekki hafði verið frá 1602.

Íslandsversluninni tókst ekki að fá landsmenn til fiskveiða á skútum sínum og voru skútur þá mannaðar frá hertogadæmunum.
Það var þó Skúli fógeti sem lagt hafði til að ráðist yrði í að kenna Íslendingum bestu fáanlegu tækni í fiskveiðum.

Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 119 og Líftaug landsins, 219: ,,Tilraunir Konungsverslunarinnar síðari við að koma á þilskipaútgerð á Íslandi áárunum 1776-1787 runnu út í sandinn og forstjóri verslunarinnar, H. C. Bech, útskýrði þetta með því, að erfitt hefði verið að fá Íslendinga til að starfa á skútunum og að almenn andstaða hafi verið í landinu gegn öllum nýjungum".

Öldin átjánda, bls. 111:
,,til marks um munaðarvöru þá sem flyst til landsins er, að til Akureyrar komu í ár 20 pund af kaffibaunum ...og 50 pund af hvítum sykri".
Vigfús Guðmundsson í Sögu Eyrarbakka: ,,1760 höfðu kaupmenn í Hólminum (Rvk.) kaffi handa sér og gestum sínum".

Trellund kaupmaður, sem einn hafði Íslandsverslunina á stríðsárunum 1657 til 1659 gaf tveimur ríkustu mönnum landsins sykurtoppa, þeim sm. Eggert ríka Björnssyni á Skarði og Þórði Þorlákssyni, Skálholtsbiskupi.
Trellund verkaði fisk, og missti skip niður í höfnina í Flatey, með 60.000 fiskum og 14 fallbyssum.
(Þorvaldur Thoroddsen: Ævis. Dr. P. Pjeturssonar biskups, 52).

Vefurpt-br.facebook.com (opnast í nýjum flipa)

1884 birtist grein í Austra, sem átelur harðlega þann nýja sið að fara gangandi í kaupstað að vetri.
Úrdráttur tekinn úr Gesti I, safnriti Gils Guðmundssonar, bls. 180:
Ósiður hefur lengi einkennt Austurland og full þörf á að áminna menn um að afleggja hann hið fyrsta. Þetta er sá siður að menn fari fótgangandi í kaupstað á vetrum, þegar ekki verður hestum komið við, taka út hjá kaupmanninum kaffi, sykur, vín, tóbak og ýmislega aðra kramvöru, binda þetta í einn bagga sem orðið getur um 100 pund, og gerast síðan áburðarklárar, oft í ófærð og vondu veðri um langan veg yfir brattar heiðar. Sjaldnast er það nauðsynjavara sem menn sækja í kaupstaðina á baki sér á vetrum. Ef svo er mun það oftast stafa af fyrirhyggjuleysi bænda að byrgja sig á sumrum að nauðsynjum fyrir veturinn. Flestir bændur geta á sumrum fengið hjá kaupmönnum og flutt á hestum allt sem þeir þurfa til ársins.


Myndir

Einnig frá árinu 1777

  • Þuríður formaður fæddist í ár
← 1776Í Skaftafellssýslu skrímsli sást1777 →Þuríður formaður fæddist í ár