Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1709
1709
1709

Á er skollið enn eitt stríð

Hljóðbrot0:00

Lag Enginn lái öðrum frekt - Bj.Þ. 831 (Augun mín)

ÁÁ er skollið enn eitt stríðvið erfðafjendur, Svía,Íslandsskip í erg og gríðógnað, sökkt og flýja.

Glúmur Gylfason · 1709

Heimildir og samhengi

,,Norðurlandaófriðurinn mikli" stóð frá 1700 um yfirráð á Eystrasalti og vildu Danir endurheimta Skán. Börðust Svíar einir á móti Rússum, Pólverjum, og Prússum auk Dana og Saxa frá 1709. Svíar gáfust upp í árslok 1719 og friður saminn 1721, en Svíar héldu Skáni. Enginn vilji fyrir því að sama þjóð réði báðum megin Eyrarsunds.

Íslandsskipin sigldu í herskipafylgd í tveimur áföngum. Fyrst til Vestur-Noregs og síðan þaðan til Íslands. Samt misstu Danir 26 Íslandsskip á 11 árum ófriðarins.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Síðan 1721 hafa Svíar og Danir ekki háð stríð sín á milli nema ef vera skyldi þetta:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1709

  • Veraldarhyggja og höfðingjasnið
  • Dýrt varð Helgu Þórð að þekkja
← 1708Fullmektugur orðinn er1709 →Veraldarhyggja og höfðingjasnið