Veraldarhyggja og höfðingjasnið
Lag Sá frjáls við lögmál
Veraldarhyggja og höfðingjasniðHólabiskup markaren mölur eyðir, raki' og ryð,í Ritningunni snarkar.
Hólajöfur sagði: ,,svei!sést hvað skrattinn fílarsögubækur brenna eien biblíur og stílar”.
Heimildir og samhengi
Torfi K. Stefánsson Hjaltalín, Saga Biskupsstólanna, 617: ,,Biskup (frá 1697) Björn Þorleifsson, d. 1710, var höfðinglega sinnaður, hélt stórar veislur og hafði mikið sveinahald. Vísitasíuferðir Björns voru kostnaðarsamar því fremur var sem veraldlegur höfðingi væri á ferð en biskup í yfirreið. Setti hann sig í lið þurftafrekustu höfðingja landsins. ...Brann nýbyggð biskupsstofan 1709... Brunnu þar bréfabækur og leturmót (stílar) auk þriggja Biblía. Var biskup undrandi á að þær brunnu, en ekki sögubækur, spil og púnspeningar og talaði um þokka andskotans á slíkum hlutum. Einnig má nefna, að biskup hafði látið minnka kirkjuna á Hólum og notað timbrið sem til féll í biskupsstofuna. Taldi almenningur að bruninn væri refsing Guðs vegna þess".
,,Höfðingjasniðið" á Birni biskupi kom einnig fram í því , samkvæmt Íslenskum æviskrám, 1, 258, að hann var hneigður fyrir söng og tók upp söng- og reikningskennslu í Hólaskóla og hélt þar fleiri nemendur á fullum styrk en honum var skylt.