Fullmektugur orðinn er
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Fullmektugur orðinn erOddur með Páli Beyergerðir þeirra varla verVídalín né þegir.
[þeyer]
Heimildir og samhengi
Am. Chr. Möller fær leyfi stam. Gyldenlöve til að dveljast í Danmörk og setur stiftamtmaður Odd Sigurðsson umboðsmann sinn með konungsleyfi, en am. Möller fær fógeta, Paul Beyer, sitt umboð ,,og var þeirra uppgangur ekki alllítill” segir Fitjaannáll.
Þeir áttu að hafa nákvæmt eftirlit með öllum embættismönnum landsins.
Fulltrúarnir fullmektugu, Oddur og Beyer, fóru þannig með vald sitt, að þeir hlutu ekki góð eftirmæli annarra ráðamanna, síst Páls Vídalín og frænda hans, Jóns, Skálholtsbiskups. Þó ekki þar með sagt að þeir væru betri, en þetta voru þeir tímar hér þar sem yfirstéttinni leyfðist flest og hafði á réttu að standa hvað sem staðreyndum leið. Sbr. það að Oddur vék Páli frá lögmennsku með geðþóttaákvörðun og Páll fór fram á það sama við stiptamtmann gagnvart Oddi, en þá voru orðnir aðrir tímar í Danmörk, og byrjaði breytingin með einveldinu 1661, sú, að með rannsókn skyldi skera úr málum og mútur illa séðar ef sönnuðust.
96 ár eru í það að lögtekin verði í Frakklandi code civil, 1804, sem afnemur stéttaskiptingu gagnvart lögunum þar í landi og ruddi lögformlegu jafnrétti braut víða um heim.
Vefurnapoleon.org (opnast í nýjum flipa)
Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.