Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1709
1709
1709

Dýrt varð Helgu Þórð að þekkja

Hljóðbrot0:00

Lag Kross á negldur meðal manna

DDýrt varð Helgu Þórð að þekkja- þeirra ein og sama rekkja -gáðu lítt að gæta sínmóðir varð en eigi ekkjaógiftri var skylt að drekkjaen vænt að heita Vídalín.

Glúmur Gylfason · 1709

Heimildir og samhengi

Íslenskar æviskrár V, 118, úrdráttur: Þórður Vídalín (Þorkelsson Arngrímssonar lærða) (~1661-1742). Rektor, læknir. Foreldrar: Síra Þorkell Arngrímsson í Görðum á Álptanesi og kona hans, Margrét Þorsteinsdóttir prests í Holti undir Eyjafjöllum Jónssonar. Stúdent 1678, lagði stund á ýmsar fræðigreinir í háskólanum í Kh., kom til landsins attestatus 1683. Rektor í Skálholti 1688, fór austur í Lón 1690 og stundaði lækningar og kennslu. Gáfumaður mikill, bestur læknir samlendra manna á sinni tíð. Hann var mjög vel að sér í náttúrufræði. Var vínhneigður og ágerðist það með aldri. ...Annað launbarn hans (með ráðskonu sinni, Helgu Magnúsdóttur í Dal í Lóni, Oddssonar, en þar, [í Þórólfsdal eða Þórisdal] bjó Þórður um tíma) og er það ekki nafngreint, en Helgu var drekkt á alþingi 19. júlí 1709. Barn var honum og kennt af Steinunni nokkurri, og sór hann fyrir það.
Þórður var um 5 árum eldri bróður sínum, Jóni, biskupi 1698 - 1720, Vídalín. Þeir bræður og Páll, lögmaður 1705 -1727, Vídalín voru systkinabörn frá afanum, Arngrími lærða Jónssyni.

Stafafell í Lóni, mynd Mats Vibe Lund:
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)

FréttFréttablaðið (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1709

  • Á er skollið enn eitt stríð
  • Veraldarhyggja og höfðingjasnið
← 1709Veraldarhyggja og höfðingjasnið1710 →Holdsveiki Björn til bana dró