Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1858
1858
1858

Á Sauðárkróki kaupmenn þar

Hljóðbrot0:00

Lag 10 litlir negrastrákar

ÁÁ Sauðárkróki kaupmenn þarkeppast við að seljaMatthías Jockums mættur varað mæla, vega, telja.

Glúmur Gylfason · 1858

Heimildir og samhengi

1. janúar 1858 varð Sauðárkrókur löggiltur kaupstaður. Verslun á þurru landi þar 1872.
Ludvig R. Kemp, Slysfarir í Skefilsstaðahreppi, bls. 11: ,,Fram að þeim tíma var engin verslun vestanmegin Skagafjarðar og illur farartálmi eftir endilöngu héraðinu þar sem Héraðsvötnin voru og þurfti að fara yfir þrjú manndrápsvötn að aðalverslunarstaðnum, Hofsósi: Hjaltadalsá, Kolku og Grafará. Sóttu því Skagfirðingar verslun til Skagastrandar.
...Um 1850 virðast Reykstrendingar hafa sótt kaupstaðarvöru sína til verslunarstaðarins handan Skagafjarðar. Það var vegna þess að þeir áttu burðameiri flutningatæki en hrossin, þar sem bátarnir voru”.

Skagfirskur Annáll Kristmundar Bjarnasonar bls. 46: ,,1858. Kaupskipið Metta sigldi inn á Sauðárkrók. Þá var bráðaþerrir um allan Skagafjörð, þó stökk fólkið úr heyvinnunni og reið út í Sauðárkrók. Kaupmaðurinn var íslenskur þótt hann kallaði sig Johnsen. Hann hét einfaldlega Jón Jónsson, var bróðir Sigurðar Jónssonar, kaupmanns í Flatey á Breiðafirði. Mikið var verslað.
Búðarsveinninn, Matthías Jochumsson, (f. 1835) stóð sveittur við diskinn í Mettu”.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Í Fólk og fróðleikur, bls. 227 segir Sölvi Sveinsson fyrst, að í Söguköflum af sjálfum mér (Matthíasi Joch.), bls. 113 standi: ,,Fagur var þá Skagafjörður, svo að mér hló hugur í brjósti”.
Síðan: ,,Sumarið 1860 var Matthías aftur á ferð í Skagafirði ...í þjónustu bresks kvekara". Á bls. 228 kemur fram að í þriðju og næst síðust ferð MJ til Skagafjarðar var hann áfangi á leið frá Odda til Akureyrarprestakalls 1887.
,,Séra Matthías fór frá borði á Sauðárkróki fyrir eindregnar ráðleggingar skipstjórans á Láru, sem taldi tvísýnt að skipið næði til Akureyrar”.
Skv. Sölva og dagbók Matthíasar orti hann ,,Skín víð sólu Skagafjörður” í stórhríð á Akureyri 10. apríl 1889 og birti í blaði sínu, Lýð.
Að kvæðinu ortu kom Skagfirðingum í hug að stuðla að opinberri viðurkenningu til handa sr. Matthíasi og undirrituðu ályktun til alþingis þar um sem bar tilætlaðan árangur. Í þingræðu vitnaði Jens Pálsson í sr. Jón Bjarnason í Kanada: ,,Maðurinn er ekki með sjálfum sér nema þegar hann yrkir” og lagði til að hann fengi þess vegna heiðurslaun í stað prestslauna svo að hann gæti ort í næði óaflátanlega og sú varð raunin um aldamótin til dauðadags skáldsins, 1920. Sjá nánar í nefndri grein Sölva Sveinssonar.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)



Myndir

Einnig frá árinu 1858

  • Í Stóradalsbónda töggur, tak,
  • Kláðamaurinn lengi lifi!
  • Póstskipið kom með kláðalyf
← 1857Fæðist núna fleira' en deyr1858 →Í Stóradalsbónda töggur, tak,