Í Stóradalsbónda töggur, tak,
Lag Þrútið var loft og þungur sjór
Í Stóradalsbónda töggur, tak,taldi ei eftir spölsauðina Kristján ríki raktil Reykjavíkur um Kjöl.
Heimildir og samhengi
Enn magnast fjárkláðinn (1857). Nyrðra stóð fyrir dyrum að sauðir Kristjáns ríka (1793-1866) Jónssonar í Stóradal, Svínavatnshreppi, yrðu valdskornir vegna kláðans. Rak hann þá 270 sauði á góu við fjórða mann á þremur sólarhringum á hjarni um Kjöl allt suður í Haukadal. Þar var þeirra gætt í haga að degi, en hafðir í rétt á nóttu sumarlangt, en síðan slátrað í Reykjavík. (Jónas Magnússon Stardal, Menn og minningaþættir, bls. 31).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Sr. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín, Eldur á Möðruvöllum, 517: ,,Ekki varð Kristján ríkur af þessu uppátæki ...þurfti að borga háar sektir fyrir.
...Kristján var faðir séra Benedikts á Grenjaðarstað” og Kristjáns á Snæringsstöðum, föður Jónasar læknis, f. 1870, afa Jónasar Kristjánssonar ritstjóra DV, d. 2018. Sjá 1932.
Ísl. æviskrár í viðbæti, V, 427, meta auð Kristjáns á 280 hndr. og fara fögrum orðum um greind, risnu, stórgjafir og hjálpsemi hans eftir harðindi og niðurskurð 1858 sem hittu hann fyrir ekki síður en aðra.
Í Heljarslóðarorrustu lætur Benedikt Gröndal Kristján gefa Frakkanum Marmier einn hrútinn.
Kjalvegur:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)