Fæðist núna fleira' en deyr
Lag Yfir kaldan eyðisand
Fæðist núna fleira' en deyrfeðrum lands til amaAlþing: ,,Ekki, ekki meir"andstætt kveini Rama.
feðrum lands, þ.e., landsfeðrum.
Heimildir og samhengi
Kvein mæðra í Rama: ,,Rakel grætur börnin sín", var vegna þess að þau voru eigi frama lífs. (Jeremía 31:15 og Matt. 2:18).
Á bls. 27-28 í ævisögu Helgu Sörensdóttur, fjallar Jón Sigurðsson frá Ystafelli um árið 1857: ,,..hafði verið góðæri í Þingeyjarsýslu langa hríð. Fólki hafði fjölgað mjög ört og landþregsli voru mikil. Fólkið hafði hvorki dáið úr hungri né drepsótttum og ekki voru hafnar Ameríkuferðir eða flutningar fólks til sjávarþorpa.
(Landeigendur á alþingi sáu til þess með vistarbandi þar til 1894 að ekki myndaðist þéttbýli við sjávarsíðuna sem tekið gæti við mannfjölgun úr 50 þúsund í 80 þúsund.) ...aldrei hefur verið jafn margt fólk í sveitum sýslunnar sem um 1860. ...voru margar jarðir byggðar upp ...á heiðunum. Þá var tvíbýli á mörgum jörðum og húsmennskur víða. Fjöldi var þá af vinnufólki einhleypu og kaupið sára lágt. Allt stafaði þetta af því að fólkið var fleira en sveitirnar báru ..með þeim búnaðarháttum sem þá voru". (Ævisaga Helgu).
Stefán Jónsson segir í Djúpdælu, bls. 176 frá tveimur dæmum þess 1839, að hreppstjóri banni og komi í veg fyrir að prestar gifti fátæk vinnuhjú sem þeir þó höfðu lýst með.
Guðrún Ása Grímsdóttir, Grunnvíkingabók I, 50: ,,...með þvílíkum lagasetningum stýrðu yfirvöld samlífi fólks ráðandi stéttum í hag; hjúskapur var lögboðin máttarstoð bændasamfélagsins”(1922).
Gísli Gunnarsson (2002): ,,...stór hluti þjóðarinnar bjó í ófrjálsu einlífi vinnumennskunnar eða að jafnaði 25% þjóðarinnar alla 19. öldina ...ekki voru tök á því að leyfa öðrum en húsbændum að eignast afkomendur, annars blasti hungurvofan við”.
Sjá og: Inga Huld Hákonardóttir, Fjarri hlýju hjónasængur, Mál og menning 1995, bls. 263–264.
Bjarni Harðarson: Króníka úr Biskupstungum, bls. 130: ,,Þórður var fæddur 1840 og það var alveg óvíst að ættarsamfélagið á Vatnsleysu hafi hugað honum þann frama að ganga í hjónaband. Í bændasamfélaginu viðgengst langt fram á 19. öld að aðeins fáein útvalin úr systkynahópi hljóti þá sælu. Hin eru dæmd til einlífis og ófrelsis vinnumennskunnar. Skortur á jarðnæði hamlar því að allir geti stofnað fjölskyldu en með því að takmarka giftingar með þessum hætti er líka komið í veg fyrir að lítilsháttar auður, sem nurlað hefur verið saman, dreifist um of. Það sem kemur í arfahlut ógiftra barnlausra fjölskyldumeðlima rennur í raun aftur til fjölskyldunnar við andlát, en ekki út fyrir hópinn ...,,Þórður gifti sig (1882) í ónáð frá sinni fjölskyldu og var gerður arflaus"" - hefur Bjarni eftir dótturdóttur Þórðar.