Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1858
1858
1858

Kláðamaurinn lengi lifi!

Hljóðbrot0:00

Lag Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið

KKláðamaurinn lengi lifi!Lúsinni skal ei fargaðþótt forseti segi með læknislyfilandinu verði bjargað.

Glúmur Gylfason · 1858

Heimildir og samhengi

A.m.k. Mýrdælingar höfðu ótrú á að drepa sauðalúsina. Það staðfestir Ritsafn Eyjólfs Guðmundssonar á Hvoli, bls. 58. Árið 1858 tóku Eyfellingar á móti sýslumanni og stiptamtmanni með svipur á lofti við Steinahelli er þeir komu þeirra erinda að fá þá til að baða.

Áratugi voru deildar meiningar um skurð eða lækningar við fjárkláðanum síðari og skoðun Mýrdælinga á sér enn fylgjendur sem telja að skaðvaldurinn hafi lifað af frá fyrra fárinu einni öld fyrr, og sé og verði hluti af náttúrunni sem varasamt sé að raska. Þetta stenst ekki kenningu dýralækna nú, og segir Sigurður Sigurðarson að ,,fyrri kláðinn” hafi verið veirusjúkdómur. Aðrir meina að þótt rök Mýrdælinga geti átt við Landnámslúsina íslensku, þá gildi þau ekki um erlendar. Um fjárkláðann síðari og afskipti Jóns Sigurðssonar af honum, sjá umsögn hér við 1861. (Öldin sem leið, 1858).

Kristleifur Þorsteinsson segir, Úr byggðum Borgarfjarðar, I, 143, frá manni sem dó eftir að hann var aflúsaður. Röktu sumir dauða hans til lúsarleysis. Í 2. bindi, 86 er fróðleg frásögn hans, sem sjónarvotts af veikinni og því sem hann kallar vitleysisköst manna henni tengd. Kristleifur segir ,,kláðanum" ekki endanlega ljúka fyrr en með útrýmingarbaði sem norskur bóndi, Myklestad, stjórnaði um land allt árið 1905.

Um það upplýsir dýralæknirinn Sigurður Sigurðarson ,,annálsvert.is” í tölvupósti:
,,Þegar hann (Myklestad) fór 1906 hafði áunnist heilmikið með því að baða mörg hundruð þúsund fjár úr tóbakslegi og menn héldu að Ole Myklestad (1841-1918) hefði tekist útrýmingin. Honum voru haldnar heiðurs samkomur hér af því tilefni. Skömmu eftir að hann var farinn fór að brydda á fjárkláðanum á ýmsum stöðum að nýju.
Það lenti reyndar á mér að fylgja eftir aðgerðum til að útrýma kláðanum og það tókst loksins árið 2002 eftir 150 ára baráttu. Síðan hefur fjárkláðinn ekki fundist á Íslandi en hann var fluttur hingað árið 1855 með enskum lömbum.
Fjárkláðanum var því ekki útrýmt 1905 af Ole Myklestad eins og sá mæti maður Kristleifur á Stóra-Kroppi taldi heldur 2002 af Sigurði Sigurðarsyni”.
Sjá enn fremur bókina ,,Sigurður dýralæknir” 2, bls. 148-154. Þar er fjallað um báða ,,fjárkláðana”.


Myndir

Einnig frá árinu 1858

  • Á Sauðárkróki kaupmenn þar
  • Í Stóradalsbónda töggur, tak,
  • Póstskipið kom með kláðalyf
← 1858Í Stóradalsbónda töggur, tak,1858 →Póstskipið kom með kláðalyf