Svaramaðurinn sýndist þar
Lag Kvæðalag, Ingi Heiðmar Jónsson kveður
Svaramaðurinn sýndist þarsjálfboðinn, Bakkus, til veislunnarað vinirnir gerðu hans veigum skilvíst ei þurfti brúðkaup til.
Heimildir og samhengi
Sigurður Breiðfjörð (1846) tók aldrei út tildæmda refsingu fyrir tvíkvæni, 2 x 27 vandarhögg.
Hann hafði þegið hjónavígslu án lögskilnaðar við fyrri konu, sem hann hafði gifst þungaðri, að talið var af völdum Petreusar, vinnuveitanda Sigurðar í Vestmannaeyjum og keypti, blásnauður, hús þar í kjölfarið.
Síðari vígsluna annaðist móðurbróðir skáldsins, séra Jóhann Bjarnason (1793-1872), aðstoðarprestur á Helgafelli.
Fyrir hann hafði skáldið áður leppað barn, Petreu.
Klerkur var dæmdur í Hæstarétti frá kjól ævilangt og miklar sektir, en fjögur börn sem hann gat utan hjónabands komust til aldurs og talin í Íslenskum æviskrám.
Af því sem vitað er um Sigurð skáld og þeirri einkunn sem prestur fær hjá Páli Eggert Ólasyni í Íslenskum æviskrám þykir sýnt að Bakkus hafi verið viðstaddur athöfnina.
(Ísl. æviskrár). Sjá og Aðalgeir Kristjánsson, ...Hafnarslóð, 219.
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)