Járn og öxi á nú spara
Lag Rósin 2
Járn og öxi á nú sparaí öðru lífi refsi Guðgapastokkur, stegla og snarastanda að mestu ónotuð.
Á heimasveitir dela dæmduDanmörk gjaldþrota og snauðað Arnarhóli tugthús tæmdutil var hvorki vatn né brauð.
Heimildir og samhengi
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Kóngur, Friðrik VI., sagði enskum stríð á hendur eftir árás þeirra á Kh. 1807.
Danmörk varð gjaldþrota 1813. (Sjá 1808).
Enskir höfðu bæði 1801 (Slaget ved Reden) og 1807 ýmist sökkt eða haft á brott með sér skip Dana frá Kaupmannahöfn svo þaðan var lítils að vænta.
Vegna matarskorts sleppti Castenskjold stiftamtmaður föngunum á Arnarhóli lausum eða sendi þá á sinn hrepp.
Eftir Napóleonsstyrjaldirnar var neyðarástand í framfærslu- og efnahagsmálum víðast í evrópu. Og Napoleon var orsök árásar enskra á Kaupmannahöfn. Bretar óttuðust að hann kæmist yfir flota Dana og myndi nýta hann gegn þeim.
Espólín segir árið 1805: ,,Áður settu sýslumenn og stundum hreppstjórar og prestar hvern þann í gapastokk dómlaust, er þess þótti verður ...þá var mjög á annan hátt en fyrr hafði verið um rétt hvers flysjungs, og vissu slíkir menn það og nýttu sér til uppvöðslu; var og komið í farir stjórnarinnar að aftaka gapastokk sem síðar var gjört til lítilla bóta ósiðamönnum".
Og 1810: ,,Það var verst að þjófa og illvirkja mátti ekki járna nema svo væri, að sæist á fyrsta prófi að þeir mundu verða ævinlegir þrælar". Saga frá Skagfirðingum II. Hér er ,,deli" notað sem stytting úr deli(n)kvent, þ.e., glæpamaður.
Árni Óla, Reykjavík fyrri tíma, bls. 45: ,,Castenskjold (stam.) sá fram á að illa mundi ganga að halda lífi í föngunum og ...rak alla fangana, 39 að tölu ...heim á sínar sveitir”.
Við stjórnina afsakaði hann þetta með því að viðbúið væri að menn fremdu glæpi til þess að komast í fæði hjá tugthúsinu, en matarbirgðum þess skipti hann út á milli fátæklinga.
Tilvísun: Tómas Guðmundsson, Gamlar slóðir, bls. 190.
Í Sölku Völku, bls. 383, lætur Halldór Laxness Arnald Björnsson segja: ,,í raun og veru erum við sú þjóð sem unir sér best í gapastokknum, en hann er aðeins frábrugðinn snörunni í því að dólgurinn tyllir niður tánum".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
Forleikur Beethovens um ósigur Napóleons í Rússlandi, kenndur við 1812:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sama, Tchaikovsky: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
ABBA:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)