Castenskjold meina því trauðla tengist
Castenskjold meina því trauðla tengistþótt takmarkalaust hér hór viðgengistsem enginn lengur fyrir flengistog friðill þar fyr'ir aldrei hengist.
Heimildir og samhengi
Séra Pétur Guðmundsson, Annáll 19. aldar, bls. 224:
,,Bjarni ... hafði getið mörg börn í hórdómi og mörg í frillulífi og varð eigi afstýrt enda gerðist það torvelt því trautt vildu margir gjalda hórdómssektir síðan af voru teknar legorðssakir og héldu menn, einkum syðra, frillur sínar með leyfi og vilja kvenna sinna og var eigi um fengist. Sögðu nokkrir að Castenskjold (stiftamtmaður) teldi það ósaknæmt.
Um Castenskjold sjá annars staðar við 1813.
Framhjálhald refsilaust í Danmörk 1785, sjá þar, einnig 1806, Ógift móðir 8 barna; 1843 Brókarlækjarbóndinn.