I Gufudal spögelset gik amok
Lag Se den lille kattekilling
I Gufudal spögelset gik amokda giftemålet fik knækpigen var dansk med stövler og stok /og student Vigfús blev væk.
Heimildir og samhengi
Danskur draugur!
Ísl. æviskrár: Vigfús stúdent Erlendsson, varð úti á Gufudalshálsi 28.11. 1805, sonur sr. E. Hannessonar í Gufudal og f.k. hans, Hólmfríðar Runólfsdóttur, prests Setbergi, Runólfssonar.
Í ,,Þar minnast fjöll og firðir" bls. 88 vitna Gufdælir að afturganga danskrar stúlku, sem Vigfús sveik ytra, hafi fylgt ætt hans eftir að hafa annað hvort villt um fyrir honum á Hálsinum eða drepið hann þar, en líkið var illa útleikið.
Afturgangan fékk nafnið Stokkfrú af því að hún gekk við staf (d:stok), eftir danskri tísku og á stígvélum, en þeir voru fáir hérlendis lifandi manna sem áttu stígvél enda hafa þau á þessum tíma verið úr leðri.
Áðurnefnd bók hefur atburðinn ári síðar en Íslendingabók.
Heimild: Ástvaldur Guðmundsson og Lýður Björnsson, ,,Þar minnast fjöll og firðir".
Helgi Hannesson, Þykkskinna, bls. 44/45: ,,Frá ómunatíð var tilvera drauga talin óyggjandi. Nú halda margir þá hugarburð einn. ...Íslenskir draugar voru ...útlagasveit í sífelldu stríði við sambýlisfólk sitt í landinu. ...Óttinn við drauga er orðinn lítill enda fækkar þeim óðum. Vera kann að þeir verði aldauða bráðum".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)