Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1806
1806
1806

Stjórnin er brá á Blöndals hátt

Hljóðbrot0:00

Lag Sá frjáls við lögmál

SStjórnin er brá á Blöndals háttog bú skyldi eiga hirðiúrættis lét þá Ólafur fáttef það var nokkurs virði.

Glúmur Gylfason · 1806

Heimildir og samhengi

1787, í kjölfar harðinda 18. aldar ákvað stjórnin að selja konungs- og kirkjujarðir með góðum kjörum sem urðu enn betri vegna óðaverðbólgu á árum Napóleonsstyrjaldanna. 1797 var leiguliðum veittur forkaupsréttur að ábúðarjörð sinni. (E. Laxn. Ísl. saga II, 130).
Am. Ludvig Erichsen (1766-1804), sonur Jóns Eiríkssonar konferenzráðs (1728-1787), kærði stam. Ólaf Stefánsson, (1731-1812) fyrir frændhygli við söluna. Ólafur var stiftamtmaður frá 1791.

Einar Hreinsson í Fyrsta ráðstefnuriti annars íslenska söguþingsins, bls. 331:
,,Ólafur slapp við að vera dreginn fyrir dóm að því tilskyldu að hann færi á eftirlaun sem er í fullu samræmi við hvernig afbrotamál háttsettra embættismanna voru afgreidd í Danaveldi á tímum einveldisins".

HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Um sölu Stólsjarða ritar Torfi K. Stefánsson Hjaltalín í Sögu Biskupsstólanna, bls. 631 og frá 657.
Þar kemur fram að Sveinn læknir Pálsson metur tjón af völdum Suðurlandsskjálftans 1784 miklu minna en Hannes Finnsson, sem fékk Skálholt keypt í kjölfarið á 407 rd. eftir mati bróður síns og mágs.
Sala Úthlíðar hefur svo fyllt mælinn. Torfi: ,,Ábúandinn þar hafði keypt jörðina. Fékk hann þó ekki afsal fyrir henni. Ólafur sótti um leyfi til að breyta sölunni þar sem verðið hafði ekki verið nógu hagstætt að hans mati.
Seldi hann svo ekkju Hannesar jörðina fyrir 10 rd. hærra verð, þó svo að ábúandinn hafi boðist til að ganga inn í það tilboð, svo sem hann átti rétt á" - bls. 661. (1804, 1808, 1812).
Alþm. Pétur Blöndal (1944-2015) talaði um ,,fé án hirðis" þegar hann vakti máls á því að stofnfé sparisjóðanna yrði gert að hlutafé. Það var svo gert í aðdraganda Hrunsins 2008.

Vefurjonas.is (opnast í nýjum flipa)

FréttDV (opnast í nýjum flipa)

Einar Hreinsson í Fyrsta ráðstefnuriti annars íslenska söguþingsins, bls. 337:
,,Seta Óafs Stefánssonar á stóli stiftamtmanns hafði ... sannfært stjórnvöld um að hagsmunum ríkisins væri ekki best borgið í höndum Íslendings ... hafði misreiknað áhrif íslenska tengslanetsins sem tókst alla 19. öldina að endurnýja sig innanfrá með hjálp hjúskaparpólitíkur".

Lindarhvoll
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Sjá og Dómkirkjan í Reykjavík I, bls. 96 eftir Þóri Stephensen.

Myndir

Einnig frá árinu 1806

  • Ógift móðir 8 barna
← 1805I Gufudal spögelset gik amok1806 →Ógift móðir 8 barna