Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1805
1805
1805

Rektorinn utan hélt um haf

Hljóðbrot0:00

Lag Sá frjáls við lögmál

RRektorinn utan hélt um hafhressti sig oft og mikiðen hlýtur nú - og héðan af -að halda sig við (S)strikið

Glúmur Gylfason · 1805

Heimildir og samhengi

Enginn skóli í Skálholti eftir jarðskjálftana 1784, en skólinn fluttur til Reykjavíkur1786og síðar nefndur Reykjavíkurskóli hinn fyrri. Hann stóð á mótum núverandi Kirkjugarðsstíg og Suðurgötu, gegnt Hólavallakirkjugarði.
Hafði biskup þá ekki lengur aðkomu að stjórn skólans.
Húsið þótti illa byggt, hélt hvorki vatni né vindum og kennslan sama marki brennd.

H. Laxness, Brekkukotsannáll, bls. 125: ,,...viku síðar einn dag á Suðurgötunni ...Þegar ég (Álfgrímur) er kominn að horninu þar sem Kirkjugarðsstígur liggur upp brekkuna, þá rekst ég altíeinu á heldramann sem er að ganga út með stafinn sinn ...og sé ég þá ekki betur en þar sé kominn Garðar Hólm".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Reykjavíkurskóla hinum fyrri, á Hólavelli 1786-1804,
stjórnaði áfengissjúkur rektor, Gísli Thorlacius, f. 1742, sem lést í Kh. 1806 hjá bróður sínum, Skúla, (1741-1815) rektor latínuskóla borgarinnar, sem setti minnisplötu á gröf bróður síns er sjá má í garði Helligåndskirken við Ströget – Strikið.

Enginn skóli 1804-5, en þá byrjaði skóli á Bessastöðum.
Mun enginn skóli hafa hlotið verri eftirmæli en Reykjavíkurskóli fyrri. T.d. segir biskupinn í Görðum, Árni Helgason, sem þar var nemandi 1795-1799 í ,,Frásagnir um skólalíf..."Boðið var að piltar skyldu læra Geographia og Arithmetica, en hvorugt var þar kennt í minni tíð, engin danska, engin íslenzka, en okkur bara sagt, að við ættum að læra þetta ... öllum sem komust í efra bekk var gefin stiptaamtmanns Ólafs Arithmetik, en það var í sjálfra piltanna valdi, hvort þeir luku upp bókinni nokkurntíma eða aldrei ..."

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1805

  • Allt varð betra á Bessastöðum
  • I Gufudal spögelset gik amok
← 1804Úr lifenda tölu var Lúðvíki svipt1805 →Allt varð betra á Bessastöðum