Allt varð betra á Bessastöðum
Lag Enginn þarf að óttast síður
Allt varð betra á BessastöðumBjörn og Scheving lofi hlöðumþarf ei fletta þar um blöðumað þar var haldið vel á spöðum.
Heimildir og samhengi
Reykjavíkurskólinn ,,fyrri”, frá1786, sjá þar, stóð á mótum núverandi Kirkjugarðsstíg og Suðurgötu, gegnt Hólavallakirkjugarði.
Húsið þótti illa byggt, hélt hvorki vatni né vindum og kennslan sama marki brennd.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Enginn skóli 1804-5, en þegar fyir lá að stiftamtmaður, F. C. Trampe, myndi ekki setjast að á Bessastöðum - eins og hirðstjórar, amtmenn og /eða stiftamtmenn og fógetar þeirra höfðu löngum gert frá 1346 heldur flytjast til Reykjavíkur 1806 - þá var Latínuskólinn haldinn á Bessastöðum 1805-1846, en í Reykjavík eftir það.
Brá til betra er skólinn flutti til Bessastaða. Umskipti þessi mundu sumir 40 árum síðar og mæltu þá gegn flutningi til Reykjavíkur. Tóku þá þar við Pereatið, óregla og brottrekstrar bæði nemenda og kennara linnulítið til 1904 og lengur, sem þó má líka rekja til pólitísks ástands í evrópu á þeim tíma.
Rektorstitill var lagður af á Bessastöðum og fékk Steingrímur Jónsson (1769-1850), titilinn lektor, en varð síðar biskup.
Kenndu m.a., Hallgrímur Scheving (1781-1861), frá 1810 til 1850; Björn Gunnlaugsson (1788-1876), frá 1822 til 1862. (1846).
Þorvaldur Thoroddsen í ævisögu Péturs biskups, bls. 18 og 19:
,,Aldrei hefur á jafnstuttum tíma jafnfrítt úrvalslið ungra manna komið frá nokkrum skóla á Íslandi, eins og frá Bessastaðaskóla á árunum 1820-1840. ...Bessastaðaskóli hefur á þessum tímum haft mikil og góð áhrif á lærisveinana ...fyrir tilstilli samvaldra ágætiskennara, verið staðbetri til menntunar og þroskunar en síðar varð. ...voru allir kennararnir samlyndir og má það heita undur meðal Íslendinga." (Segir bróðir Skúla, sjá 1908).
Sverrir Kristjánsson bendir á hve skammlífir þeir urðu, þessir efnilegu námsmenn, og telur upp í Horfin tíð, bls. 19, átta þeirra, sem allir utan tveir báru beinin í Kaupmannahöfn, þar sem mörgum reyndist erfitt að fóta sig:
Baldvin Einarsson dó 32 ára, Tómas Sæmundsson dó 34 ára, Brynjólfur Pétursson dó 41 árs, Jónas Hallgrímsson dó 38 ára, Lárus Sigurðsson dó 24 ára, Högni Einarsson dó 24 ára, Torfi Eggerz dó 27 ára, Skafti Tímóteus Stefánsson dó 28 ára.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Fleiri Íslendingar en þeir Þorvaldur og Sverrir hafa orðið til þess að mæra Bessastaðaskóla, en erlendir ferðamenn hafa líka látið orð falla: Dillon lávarður og John Barrow landkönnuður 1934, og grasafræðingurinn Hooker sem 1809, blöskraði svo aðbúð og sóðaskapur að brugðist var við um 1820 og farið að sópa og viðra sængurföt. Lök skyldu þá þvegin tvisvar á ári. Ekki sýndist Barrow það hafa gengið eftir 1834 - honum virtist hvorki hafa verið þrifið né þvegið í nokkur ár.
Frá fyrri skólum var sú framför, að á Bessastöðum sváfu aðeins tveir saman í rekkju en áður þrír.
Heimildir og tilvísanir:
Guðmundur Magnússon, Íslensku ættarveldin: Veröld 2012, bls. 82;
Saga Stykkishólms I – Stykkish. 1992;
Íslandssagan í máli og myndum bls. 206, 212, 286).
Helgi Þorláksson, Á sögustöðum, bls. 105.