Árið 1784

t.d.

3 vísur frá árinu 1784
  1. 1784Lag: Sumarið þegar setur blítt - Bj.Þ. 868

    Þó að ítum þætti örg

    þrjóska, kergja, lestir
    langtum orti Látra-Björg
    liðugra en flestir.

    + Látra-Björg, f. 1716 á Stærra- Árskógi, var dóttir Einars skálds Sæmundarsonar og Margrétar Björnsdóttur. Hún reri löngum frá Látrum á Látraströnd, ígildi karlmanns í skiprúmi, skaphörð, einstæð og barnlaus. Fannst…

    Hlusta
    Minnisvarði um Látra-Björg að Stærra-ÁrskógiSéð til Látrastrandar frá Dalvík
  2. 1784Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Ein er báran ekki stök

    þó eldur sé að baki
    enginn hefur á því tök
    upp að reisa úr flaki
    Skálholtsstað sem ragnarök
    röskuðu með braki
    okkur reynast ekki spök
    undirdjúp og Laki.
    1 erindi til viðbótar

    Skaftáreldum lauk í febrúar 1784, en þá lagðist ís að Norðurlandi en Suðurlandsskjálfti reið yfir 1. ágúst. Upptök skjálftans voru nálægt Vörðufelli. Almenningur áleit að hér væri reiði Guðs að verki - iðrunarlaust fólk…

    Hlusta
    Skálholt um 1900EdlgosKanceliið, Kh.
  3. 1784

    Í Haga varð Þóra sem lifandi lík

    limafalls- þjáðist af sýki
    hannyrðakona þó hún var slík
    að hrós fær í himnaríki.

    Séra Pétur Guðmundsson í Grímsey, Annáll 19. aldar, bls. 198, úrdráttur: Fv. sm. Davíð Hansson f.1731, lést að Hamri á Barðaströnd 1815. Hann var sonur klh. Hans, Lárussonar Scheving sýslumanns í Vaðlasýslu. Davíð var…