Fyrir Alþing Yfirréttur
Lag Jólasveinar 1 og 8
Einn lítill, tveir litlir, þrír litli fingur
Fyrir Alþing Yfirrétturþar Ísleifur, Gröndal og Magnús kljástHólaskóli síðast setturvið sálmabók margur illa brást.
Sephensen ei ber að bakibræður þrír und sama þakidómar sýnast digna og hrakidelinkventa lítið saki.
Þá persónulegan djöful dródómstjórinn í vafaundan Magnúsi Fjandinn flófékk þó Guð að lafa.
Heimildir og samhengi
Á einu og sama árinu lagði Magnús Stephensen (1762-1833) þrenninguna að velli í stafrófsröð: Alþingi, Djöfulinn og Hólaskóla.
Heimildarmenn: Bjarni Thorarensen, dómari og skáld og Jón Þorláksson, prestur og þjóðskáld.
Harald Gustavsson orðar það svo í ,,Upplýsingin á Íslandi, bls. 51: ,,Gagngerar endurbætur fólust ... í því að lögrétta og yfirdómur voru lögð niður og leyst af hólmi af Landsyfirréttinum í Reykjavík.
Æðsti réttur landsins breyttist þannig úr því að vera árlegar sumarbúðir í það að vera formleg stofnun sem starfaði allt árið".
Alþingi afnumið með konungsúrskurði 6. júní 1800. Sjá og 1798.
Landsyfirréttur settur 10. ágúst 1801 í Hólavallaskóla þ.e., Reykjavíkurskóla gamla, þeim sem tók við af Skálhotsskóla1886og síðar, 1802, einnig af Hólaskóla.
Rétturinn var þar, nálægt norðausturhorni Hólavallakirkjugarðs Suðurgötumegin í Rvk., þar til 1807, þegar fluttist í Austurstræti 22.
Dómstjóri var Magnús Stephensen (1762-1833), meðdómarar Benedikt Gröndal (1762-1825) og Ísleifur Einarsson (1765-1836) og voru mjög ósamstíga, sbr. það, að sem sýslumaður hafð Ísleifur áður dæmt húnvetnskan sauðaþjóf til ævilangrar þrælkunar í Kaupmannahöfn, sem lm. Magnús Stephensen breytti í eins árs tugthúsvist á Arnarhóli. (Þykkskinna Helga Hannessonar, 192).
Um tildrög þess að Alþingi var lagt niður og Landsyfirréttur stofnaður vísast í umfjöllun við1764 og1798.
Hvergi varð þá vart óánægju með að Alþingi var lagt niður.
Rétturinn fékk eitt mál til afgreiðslu þetta ár, en málsaðilar mættu hvorugur. Næstu tvö árin urðu málin 7 hvort ár.
Skjóta mátti dómi Landsyfirréttar til Hæstaréttar í Kaupmannahöfn. Til þess hafði og stiptamtmaður vald. Þegar Ólafi Stephensen var vikið frá því embætti 1803 var Ludvig Ericsen settur stam. og áfrýjaði málum óumbeðið til Hæstaréttar (,,gerði sér leik að því") jafnvel þótt málsaðilar sættu sig við dóminn. M.a.s. áfrýjaði hann dómi þar sem báðir voru látnir og höfðu dáið sáttir við dóminn og löngu grafnir (Bj.Þ. bls. 51.).
Kastast hafði í kekki með settum stam., LE, og dómendum og var það eina tilvikið þar sem dómararnir stóðu saman. Tilefnið var nauðaómerkilegt og snerist um á hvaða tíma dómstörf skyldu byrja að morgni og hvort farið skyldi þá eftir úrum dómara eða klukku hringt eins og verið hafði á Þingvöllum. Þá einnig: hvaða klukku hringja skyldi.
Ritari Réttarins var Björn Stephensen, bróðir Magnúsar dómstjóra.
1. assessor Landsyfirréttarins var skipaður Stefán Stephensen, bróðir Magnúsar dómstjóra, en skyldi ekki sitja í dómnum nema í forföllum bróður síns.
Heimild: Björn Þórðarson, Landsyfirdómurinn 1801 - 1919, bls. 49-58.
Ræða Magnúsar Stephensen við setningu Landsyfirréttar 1801 gefur ekki til kynna að honum sviði nafngiftin ,,morðingi alþingis", en færir rök fyrir því að engin eftirsjá sé að þingi sem ekki hafi ,,verndað og viðhaldið friði manna á milli, ekki varðveitt æru, líf eða eignir manna, ekki siðgæði ... þegar stjórnleysi og óhlýðni gegn lögunum tók yfirhönd ,,, dómum á Alþingi var oft hleypt upp með fjölmennu liði af uppvöðslumönnum, - óeirðamenn og ribbaldar tóku allt með valdi og vopnum ... þar af leiddi rán og gripdeildir, morð og dráp".
Tekur Sigurður Líndal ekki undir með Magnúsi í Ráðstefnuriti ll, Íslenska söguþingsins 1997, bls. 342?
,,En drýgsti áfanginn í átt til nútímans var þó afnám Alþingis og stofnun Landsyfirréttarins árið 1800. Með þeirri ráðstöfun fékk æðsta dómsvaldið innanlands sjálfstæði..."
Sálmabókin 1801, ,,Leirgerður":
Árni Þórarinsson Hólabiskup (1741-1787) vann að nýrri sálmabók að fenginni heimild stjórnarinnar, en að honum látnum fékk Landsuppfræðingarfélag Magnúsar Stephensen það hlutverk og skyldi hafa samvinnu við Geir biskup Vídalín.
Gils Guðmundsson, Gestur 2, 109-134, úrdráttur, en hér er allur þáttur hans: hVefurttps (opnast í nýjum flipa)
Sálmabókin olli slíkum deilum að annars eins eru fá dæmi. Trúarskoðanir Magnúsar voru ákaflega andstæðar þeim sem hér voru á ofanverðri 18. öld. Sálmabók Guðbrands, Grallarinn og Vídalínspostilla boðuðu ekki að djöfull væri enginn til og helvíti fyrirfyndist hvergi. Magnús hafði breytt fjölda sálma stórlega að höfundum forspurðum. Dæmi úr viðbætinum 1819, sýnir ,,hagmælsu" hans þegar hann breytir sálmi Jóns lærða Jónssonar í Möðrufelli (1822) úr: ,,Að elska þig, minn góði Guð" í ,,Guð þig að elska, góði minn".
Eiitt mesta skáld þessa tíma var séra Jón Þorláksson á Bægisá, (1773,1788, 1819) sem orti meinlega um ,,Leirgerði" enda hafði Magnús breytt mörgum sálmum hans. Kunnust er Rustasneið,
2. erindi:
Skáldskapur þinn er skothent klúður
skakksettum höfðuðstöfum með
víðast hvar stendur vættar-hnúður
valinn í fleyg sem rífur tréð
eitt rekur sig á annars horn
eins og graðpening hendir vorn.
Séra Arnór Jónsson prestur í Hestþingum í Borgarfirði var mikill vinur Magnúsar Stephensen. Átti hann 14 sálma í Leirárgarðasálmabók. Hann orti hroðalegt níðkvæð, Greppssálm, um séra Jón á Bægisá og átti að vera svar við Rustasneið og smjattar á kvensemi hans og barnseignum, sem kostuðu tvisvar hempuna:
Sælir, minn frægi séra greppur
sem eigið barn með hverjum straum
hvers marg-skammrifni hempu-leppur
hátignar þáði tvennan saum,
og hvers enn göptu götin forn
ef garpar bæru vel sín horn.
1807 varð séra Arnór gerður að prófasti í Borgarfjarðarsýslu. Reiknaði séra Jón á Bægisá það sem laun frá Magnúsi fyrir Greppssálm og orti:
Prestur setti saman,
svei mér ef ég lýg!
vondslegt vísnagaman
og vann ei fyrir gýg;
prófastsdæmi fyrir það fann;
nær sem verri býr til brag
biskup verður hann.
Norðlendingar voru hvað harðastir í gagnrýninni og kenndu Magnúsi líka um að dagar Hólaskóla voru nú taldir, en hann hafði lagt það til við stjórnina, sjá næstu vísu. (1802). Um sálmabókina, sjá enn 1833.
Próf. Einar Sigurbjörnsson: Vefurhymnus.is (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Kristleifur Þorsteinsson: Úr byggðum Borgarfjarðar, bls. 313: ,,Hin svokallaða Aldamótabók náði aldrei slíkri hylli í hjörtum alþýðumanna sem Grallarinn, víst meðfram vegna þeirrar hörðu deilu sem út af henni reis milli tveggja þjóðkunnra manna, sem áttu þar sálma. Var hún af sumum nefnd Skynsemistrúarbókin". Sjá 1833.
Um sálmabókina, sjá hér: HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Daði fróði Níelsson, Leiftur 1946, bls. 33: ,,Sagt er að þegar útgefarar messusöngbókarinnar nýju sendu honum (sr. Sæmundi Magnússyni Hólm) hana til innleiðslu í kirkjur sínar, slægi hann nagla í gegnum hana og hnoðaði ró fyrir, sendi hana svo suður aftur”.
Sálmabók kom út 1871 og loks langlíf SB 1886, en voru án nótna.
Der Spiegel Geschichte 1, 2021, bls. á bls. 108, skrifar Felix Bohr, að kristnin hafi ratað í kreppu á upplýsingartímanum. Þá var hlutverk Biblíunnar að margra áliti helst það, að vísa mönnum veg til siðlegs og skynsamlegs lífernis.
Páll Skúlason, Pælingar, 260: ,,...(hagnýtt) guðleysi á helstu rót sína að rekja aftur til 18. aldar þegar ...iðnbyltingin reið í garð ...trú á endalausar framfarir á sviði tækni. ...Í slíkum heimi verður allt ...að vera útskýranlegt ...eftir leiðum vísinda. ...Guð hættir að skipta máli".
Hið Ísl. bókmenntafélag gaf 1990 út bók ,,Upplýsingin á Íslandi, 10 ritgerðir. Eina þeirra ,,Guðfræði og trúarlíf" ritar Hjalti Hugason og nefir til sögunnar upplýsingarmenn sem lært höfðu í háskólum erlendis nema sá fyrstnefndi, sr. Þorvaldur Böðvarsson sálmaskáld (hér sjá 1798), Hannes Finnsson (1772), Tómas Sæmundsson (1842), biskupinn í Görðum, Árna Helgason (1836) og ályktar að hið dreifða íslenska landbúnaðarsamfélag hafi langt fram í 19. öld haldið sig við rétttrúnað Jóns Vídalíns og Grallarans 1779uns nýjar kynslóðir uxu upp með spurningakveri Balles 1798, sálmabókinni 1801, hugleiðingum, Mynsters 1839 og síðar prédikanasafni Péturs biskups Péturssonar.
Hjalti talar í þessu samhengi um upplýsingastefnuna sem ,,hugmyndafræði höfðingja" sem hafi einkennst af alþjóðahyggju á tíma vaxandi þjóðernishyggju.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Einar Laxness, Íslands saga II, 119: ,,Fyrsti dómstjóri var Magnús Stephensen ...varadómari var skipaður Stefán Stephensen, varalögmaður, og dómsmálaritari (sekreteri) Björn Stephensen á Lágafelli (bróðir Magnúsar og Stefáns). ...breyting, sem varðaði Landsyfirrétt, var stofnun svonefnds sakamálayfirréttar ...samhliða þessari breytingu voru hegningarlög milduð í þeim tilgangi að sakamenn gætu afplánað refsingu innanlands".
Upplýsingarmaðurinn Magnús Stephensen, líkt og dómarar í Danmörk, var fylgjandi mildari refsingum en áður tíðkuðust. Greindi hann þar á við félaga sína meðal íslenskra lögfræðinga sem og almenningsálitið og í þess munn er vísan lögð. Hér skal tilfært dæmi frá sm. Jóni Espólín þó að það sé að vísu nokkru yngra:
Saga frá Skagfirðingum II, 119n: ,,Í þann tíma var allt orðið á annan hátt en fyrr hafði verið ...og ekki að byggja á í nokkru málefni hversu það mundi ganga í Hæstarétti, en öll stjórn utanlands var svo mild við sakamenn og illvirkja að þeir máttu ei annars en verða þess varir ...var það andi stjórnarinnar að engum illgjörðamanni mætti þröngva með neinu til meðkenningar og þó engan dæma nema full vitni fengist að verkum hans ...og mjög lint var tekið á hórdómum og alls konar lauslæti...illgjörðamenn áttu sér félaga sem helst var í Húnavatnssýslu ...málarekstur varð að vera svo langur sem illvirkjar vildu, ef mál voru stór svo að kæmu fyrir Hæstarétt, en þar var oftast vís von linunar, og ef hún fékkst ei, þá linaði konungur sjálfur".
(delinkvent: sjá skýringu við 1869, en á þessum tíma sletta lærðir latínu).
Sm. Magnús Ketilsson segir í Stiftamtemmm og amtmenn á Íslandi, bls.37, ekki nýtt á Íslandi þótt assessoarar Yfirréttarins dæmi eins og þeir viti að amtmaður vilji. Sýslumenn hafi dæmt að vilja lögmanna og lögmenn að vilja amtmanna. og megi finna dæmi þess langt fram í aldir.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
Tilvísanir og heimildir:
Einar Laxness, Íslands saga II, 118 - Landsyfirréttur;
Jóhann Hjaltason: Frá Djúpi og Ströndum, 1963, 155;
Jón Böðvarsson: Akranes til 1888, Rvk. 1992, bls. 236;
Guðmundur Magnússon, Íslensku ættarveldin: Veröld 2012, bls. 82;
Gils Guðmundsson: Frá ystu nesjum 2. útg. II, bls. 110;
2. ísl. söguþingið 2002, bls. 98.