Yfirlit 18. aldar
Lag Undir Bláhimni / Joe Lyons, Sam C. Hart
Yfirlit 18. aldar
Þegar minnast skal átjándu aldartendra Árni og Skúli flest ljósMóðuharðindi kveðjur fá kaldarFriðrik kóngur sitt verðskuldað hrós.Halla' og Eyvindur lágu' úti lengiAppolonía' í grunsemdum dómenn þótt Dísu við draugagang tengivar hún driffjöður Stokkseyri þó.
Eins þótt lækni og ljósmóður fengjumog í logana engum meir fleygtennþá drekkjum og höggvum og hengjummeðan holdið gegn freisting er veiktMilli lögmanna lítið er gamanþó að lögfróður Páll þyki og vísekki leiðast þeir Sigurður saman,,út í sumarsins Paradís“.
Heimildir og samhengi
Árni: Þ.e. Á. Magnússon prófessor og handritasafnari.
Skúli: Þ.e. Sk. Magnússon fógeti.
Móðuharðindi: Gos úr Laka 1783.
Flestum mun koma fyrst Friðrik V. í hug, sá sem setti miklu meira fé í Innréttingar Skúla Magnússonar, en um var beðið, en föðurafi hans, Friðrik IV. reyndist Íslendingum líka vel og betur 1701 og 1702 en ,,.hinir merkustu menn sem þá voru uppi með þjóðinni" skv. Jóni Aðils, sagnfræðingi, sjá þar.
Halla og Eyvindur: Útilegumenn, sjá 1745.
Appolonia: Apollonia Schwartzkopf, norsk, sem am. Niels Fuhrmann á Bessastöðum rauf heit við, sjá 1724.
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)
Dísa: Sjá 1682. Á 17 blaðsíðum fjallar Vigfús Guðmundsson um málavafstur Þórdísar Markúsdóttur á Stokkseyri í Sögu Eyrarbakka I, bls. 193-210. Einnig fjallar Helgi í Hólum í Sagnabrotum sínum, útg. af Sögufélagi Árnesinga, um Stokkseyrar-Dísu á bls. 36. Vegna þvermóðsku og vanskila hafði sóknarprestur hennar biskupsheimild til að bannfæra hana.
Einar borgari (1831-1904), kaupmaður í Einarshöfn, Eyrarbakka, var 4. liður frá Stokkseyrar-Dísu. Hann var faðir Sigfúsar tónskálds og dómorganista.
Þjóðsögur af ,,kunnáttu" Stokkseyrar-Dísu: Vefursagnirafsudurlandi.is (opnast í nýjum flipa)
Ekki þótti kunnátta og færni Þórdísar einleikin og fékk því á sig galdraorð. Sagnir af ,,kunnáttu" hennar eru í Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Þær tók Óskar Halldórsson 1971 upp í bókina Galdrasögur og eru þar á bls.178 til 181.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Páll: Lm. P. Vídalín sem vék fv. lm., Sigurði Björnssyni frá því lögmannsembætti sem hann þó gegndi ekki lengur enda Páll tekinn við því.
Síðan lenti þó lm. Páll Vídalín í enn harðari deilum við lm. Odd Sigurðsson. Páls hér getið 16 sinnum á 17. og 18. öld.
Höfundur texta síðustu línu: Magnús K. Gíslason
frá Vöglumtextar.midja.is (opnast í nýjum flipa).
Gosinu úr Lakagígum 1783 hefur verið gefin sök á (þökkuð) frönsku byltingunni 1789, en aska í lofti olli loftkulda með uppskerubresti.
Með líkum hætti kennir Gerard Piqué 2021 Eyjafjallajökulsgosinu 2010 um að knattspyrnulið hans, Barcellona, tapaði fyrir Inter í undanúrslitum Evrópukeppni meistaraliða árið 2010 eftir að hafa orðið að aka til Milano í stað þess að fljúga: ,,Siete stati fortunati nel 2010 quando l'Inter ci ha eliminato ...siamo andati a giocare a Milano in pullman per colpa del vulcano, quella semifinale è stata scandalosa, ci fecero un furto scandaloso".
Þá héldu áhoarfendur á San-Siro að leikmenn Barcellona væru allir að herma eftir göngulagi Bidens Bandaríkjaforseta.