Árið 1764

t.d.

2 vísur frá árinu 1764
  1. 1764Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

    Halldór Jakobs ennþá ær

    á h'onum spjótin standa
    ýmsa bítur aðra slær
    yfirvaldið Stranda.

    Sm. Halldóri Jakobssyni (1735-1810) Eiríkssonar útgerðarmanns á Búðum var vísað úr Kaupmannahafnarháskóla fyrir ofbeldi 1756. Vikið frá Standasýslu tímabundið 1764 eftir áflog, barsmíðar, bit, skjalafals og gæsluleysi…

    Hlusta
    Halldór beit frá sér - eins og fleiri
  2. 1764

    Jónsbókarlögin að jaðri' eru sorfin

    jörðin þau geymir nú, grjótið og torfin.
    Lengur fást bændur við ljána og orfin
    en lögrétta' hin forna' er úr sögunni horfin.

    Tilskipun einvalds konungs 16. nóvember 1764 fellir úr gildi ákvæði Jónsbókar frá 1281 um Lögréttu. Lögréttumönnum fækki úr 36 í 10 og séu ekki meðdómendur, en aðeins þingvottar, og enn var þeim fækkað í fjóra 1796.…