Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1802
1802
1802

Norðanlands er stríð og streita

Hljóðbrot0:00

Lag Varnæs' Sølvbryllupssang:

Femogtyve år er gået

NNorðanlands er stríð og streitastjórnarinnar kassi þurrHólavinir hár sitt reytaHenderson og ArnljóturMagnús virti ei metnað Hólamenntun nyrðra lítið ræddekki skeytti um þann skóla,,,upplýsingin, holdi klædd”.

Glúmur Gylfason · 1802

Heimildir og samhengi

Torfi K. Stefánsson Hjaltalín - í Sögu Biskupsstólanna, 668 og í Eldi á Möðruvöllum, 153 -

segir, að í lýsingu Hendersons á heimsókn hans til Hóla 1814 sé sú heiftarlega gagnrýni á Magnús Stephensen, að á Hólum hafi verið framin helgispjöll - en Magnús samdi þá tillögu að eignir stólsins yrðu seldar og skólinn sameinaður Reykjavíkurskóla 1802.
Fleiri mæltu þá og síðar á svipaðan hátt og Henderson.
Torfi nefnir Gísla Jónsson, staðarhaldara á Hólum, próf. Gísla Brynjólfsson og sr. Arnljót Ólafsson alþm.

Sm. Magnús Ketilsson: Stiftamtmenn og amtmenn, bls. 119: ,,...það var lögmanni Magnúsi Stephensen að kenna að skólinn á Hólum var fluttur til Reykjavíkur, á móti hvorju þó lögðu sosem velþenkjandi patriotar: Justitzraad Thorkelin (Grímur) og amtmaður Thorarensen" (Stefán).

Til þessara atburða voru sótt rök fyrir því að Gagnfræðaskóli Akureyrar skyldi fá að útskrifa stúdenta 1930.
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)

Brynleifur Tobíasson, Skagfirðingaþættir IX, bls. 55 – nefna, að eftir að Hólaskóli var settur haustið 1801 hafi borist konungsbréf, dagsett 2.10., þar sem segir að Hólaskóli skuli niður lagður og sameinaður Reykjavíkurskóla á Hólavelli. Kennslu var þó haldið fram til vors og útskrifaðir 5 nemendur. Einn þeirra var Hallgrímur Scheving, síðar kennari við Bessastaðaskóla.
Rektor, Páll Hjálmarsson - rekur Brynleifur áfram - hélt til Hafnar haustið 1802 þeirra erinda að fá ákvörðun þessari breytt, en án árangurs. Kennararnir skyldu þó á launum uns tækju við öðru starfi.
Steingrímur Jónsson, þá í Kh., síðar rektor við Bessastaðaskóla og biskup, var Páli innan handar við málavafstrið og hreinritaði erindið. Á afrit skrifaði hann eigið álit og lýkur með setningu sem taka má sem staðfestingu á því áliti Sverris Jakobssonar á fyrirlestri Miðaldastofu HÍ 24. 11. 2016, að aldamótin 1800 hafi verið lágpunktur Íslandssögunnar, sbr. og 2008: Steingrímur reit: ,,Guð annist Ísland”.

Tilvísun: Helgi Þorláksson, Á sögustöðum, bls. 247.

Myndir

Einnig frá árinu 1802

  • Djöfull Steinku dáraði
  • Bringukolls fann klerkur þjóf
← 1801Fyrir Alþing Yfirréttur1802 →Djöfull Steinku dáraði