Þuríður formaður fæddist í ár
Lag Þrútið var loft og þungur sjór
Þuríður formaður fæddist í árfrækin og bráðþroska skrambivissi að stýra og örugg við árupplýsti ránið á Kambi.
Yfirvöld - að venju rög -vel sig máttu hugasa´umhvort að konum landsins lögleyfðu að ganga í buxum.
Heimildir og samhengi
Íslenskar æviskrár V, 258, úrdráttur:
Þuríður Einarsdóttir, formaður (1777-13. nóv. 1863). Fædd á Eyrarbakka. Einbeitt, snarráð, skynsöm, góðlynd, hjálpsöm. Hneigð mjög til útistarfa, eftirtökusöm (sbr. Kambsmálið) og minnug. Fór fyrst á sjó 11 ára gömul og hafði þegar gott dráttarlag. Varð háseti 16 ára. Síðar í 19 ár frá tvítugu hjá Jóni hreppstjóra Þórðarsyni í Móhúsum. Tók saman við Erlend nokkurn Þorvarðarson í 2 ár og átti með honum dóttur sem náði 5 ára aldri. Þuríður átti síðan heima í Götu á Stokkseyri. Varð 1816 formaður á áttæringi á Stokkseyri hjá séra Jakobi Árnasyni í Gaulverjabæ (bróður Valgerðar 1872) í 25 vetrarvertíðir. Þuríður giftist vinnumanni sínum, Jóni Egilssyni, (21 árs) haustið 1820. Hann fór frá henni næsta vor. Frá 1840 til 1847 var Þuríður í Hafnarfirði. Bjó síðast í kofa hjá Skúmsstöðum á Eyrarbakka.
Nánar um Þuríði og Kambsránið, sjá 1827.
Sagan af Þuríði formanni og Kambránsmönnum er rituð af Brynjólfi Jónssyni frá MInna - Núpi. Útgefandi Forlagið.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
VefurGuide to Iceland (opnast í nýjum flipa)
Vefuricelandmag.is (opnast í nýjum flipa)
Frá og með 2023 eru kvenmenn konur, en ekki menn: Þuríður forkona / sjókona, en kvenkyns ráðherra verður ráðskona.