17. öld - yfirlit
Lag Óvinnanleg borg
17. öld - yfirlit
Sautjánda öldin alda stystellefu dögum munar.Guðbrandur fékk hjá Guði visten galdrabálið funar.Oss yfir Tyrkinn tróðtrú efla Hallgríms ljóðen biskup, Bauka-Jón,þann breyska Drottins þjónum græsku margur grunar.
Heimildir og samhengi
Síðasta ár aldarinnar, 1700, stytt um 11 daga, sjá þar.
Guðbrandur Þorláksson, biskup á Hólum dó 1627.
Fyrsta galdrabrenna var 1625, síðast brennt 1685.
,,Tyrkir" – skip frá Alsír - rændu á Austfjörðum og í Vestmannaeyjum 1627.
Passíusálmarnir prentaðir á Hólum 1666.
Fyrsta biskupsvígsla á Íslandi þegar Brynjólfur Sveinsson vígði Jón Vigfússon til Hóla 1674 og las honum textann Jóh. 10,1: ,,Sá sem kemur ekki inn um dyrnar inn í sauðabyrgið, heldur fer yfir annars staðar, hann er þjófur og ræningi". Sjá og 1673.