Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1700
1700
1700

Sautján öldum eftir Krist

Hljóðbrot0:00

Lag Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

Lag Nú árið er liðið í aldanna skaut

SSautján öldum eftir Kristárið gerði kóngur stystGregor að því gætti fyrstað gamli stíllinn brjálaðist.

Nú öldin er liðin í eilífðar rás.En ætli það muni neitt sakaþótt ellefu daga af óræðri glásvér aldregi fáum til baka?Þar ómældu af var að taka.

Glúmur Gylfason · 1700

Heimildir og samhengi

Gregorskt tímatal loks tekið upp í Danaveldi - í stað þess Júlíanska - að tillögu Ole Römer, þess er reiknaði ljóshraðann árið 1676 með um 90% nákvæmni. Breyting þessi var gerð í Vatikaninu 1582 í tíð Gregors páfa 13.

Fitjaannáll II, bls. 341-2: ,,Með því að sá gamli rímstíll brjálaðist var svo skikkað, að þegar kominn var sá 16. Novembris... sem var laugardagur, skyldu undanfellast 11 dagar og sunnudagurinn að morgni teljast sá 28. Novembris og fyrsti sunnudagur í aðventu ... vinnuhjúaskildagi var áður á vorkrossmessu eður 3. Maí, en skyldi hér eptir vera sá 14. Maí”.

Sjá vísu 1582en þá tók það tímatal gildi í rómversk-kaþólskum löndum, sem kennt er við Gregor 13. páfa. Þá var árið orðið ~10 dögum of langt.
Sjá nánar: Gunnar Karlsson, Inngangur að miðöldum, 308.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

og: Vefur (opnast í nýjum flipa)
Saga Íslendinga VI, 11
segir vinnuhjúaskildagabreytinguna aldrei hafa náð til Austfjarða. Sjá og1622.

AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1700

  • 17. öld - yfirlit
  • Á helgidögum hungurlús
← 1700Á helgidögum hungurlús1701 →Útskipun er einkar fljót: