Náttúruöflin eru völd
Lag Ég að öllum háska hlæ - Bj.Þ. 829
Náttúruöflin eru völdað ógnvekjandi spjöllumí þrígang hafa' á þessari öldþjarmað Reynivöllum.
Heimildir og samhengi
Fitjaannáll II, bls. 333-4: ,,Þann 15. Januarii sem var sunnudagskveldið fyrsta í þorra, eptir húslestur, skeði það voveiflega og hryggilega tilfelli á Reynivöllum í Kjós, að snjóflóð hljóp á staðinn og tók öll hús nema kirkjuna, smiðjuna og fjósið.
Sáluðust þar inni 7 menn með prófastinum í Kjalarnesþingi, Oddi Jónssyni, er þann stað hélt....
Vetur hinn harðasti... lagði sjó og vatnsföll framar en áður það menn til mundu, þvílík frostgrimmd hygg eg ekki komið hafi, sem þá var, síðan þann vetur er Lurkur var kallaður; þá var datum 1602”.
Aðrar Reynivallaskriður á 17. öld voru 1642og 1671.
Hestsannáll segir 1699: ,,Var vetur harður og... Hvalfjörður var genginn af Hvalfjarðareyri að Klafastöðum" – þ.e., nærri járnblendiverksmiðjunni.
Vefurilpost.it (opnast í nýjum flipa)