Á helgidögum hungurlús
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Á helgidögum hungurlúsvið hræi fáum býðurhirslur upp svo brýtur búsbanhungraður lýðuryfirvöld ef í hann nááminna og flengjadugi ekkert minna, mámarka, strýkja, hengja.
Heimildir og samhengi
Annálar III, Eyrarannáll bls. 403:
,,Á þessum vetri var víðast um landið... stórþjófnaður og ránskapur af útileguþjófum og umhleypingum, bæði kviku og dauðu stolið og rænt, kirkjur og útihús uppbrotin og fémunum úr stolið, kýr í fjósum mjaltaðar og fé úr fjárhúsum stolið af hlaupastrákum og umfarandi fólki og einninn af því fólki sem sakir fátæktar til sjósíðunnar fór sér bjargar að leita hvar af nokkrir fundust bæja á milli af hungri og kulda dauðir þá voraði. Margir af þeim þjófum náðust og urðu straffaðir í ýmsum sýslum.
Lögmaður Gottrup lét hengja 2 og nokkra strýkja og marka.
Herra Sigurður Björnsson lét og hengja 1 eður 2, fyrir Jökli strýktir og markaðir 7 og svo víðar”.
Saga Íslendinga, V, 404 segir 400 menn hafi farið í sjóinn veturinn 1700.
Um hallæri í Evrópu á síðustu ártugum 18. aldar fjallar bókin ,,Ástand Ísl. um 1700". Á bls. 71-72 segir að rannsóknir telji Heklugosið 1693 ásamt gosum í Indónesíu hafi valdið síun á sólarljósi sem olli harðindunum sem uxu þá á Íslandi fram til um 1703, Sbr. hér við, 1699 til 1701.
Á Skandínavíu og Skotlandi
skelfilegt mannfall buldi
við- þar lengi varandi
veiðileysa og kuldi.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
,,Ástand Ísl. um 1700" telur á bls.89, að fólksfækkun vegna harðinda og aflaleysis á tveimur síðustu áratugum 17. aldar hafi verið um 10%.
Í sömu bók byrjar kafli á bls. 89, sem staðfestir það sem vísan segir.