Hólmfríður með Halldóri fór
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Hólmfríður með Halldóri fóraf hefðarættum merkumbráðvel gefin börnin stórbáru af í verkumsynir þeirra sátu í kórog sungu rómi sterkumbóndi hennar bæði frjóraf biskupi og klerkum.
Heimildir og samhengi
Reykholtsprestaættin sat þann stað í um 200 ár.
Hólmfríður prófastamóðir, Hannesdóttir (1641-1731) frá Kolsholti í Flóa, giftist Halldóri (1626-1704), síðar próf. Reykholti, Jónssyni, sá Jón söngvari frægur og pr. Reykholti, Böðvarssonar próf. Reykholti, Jónssonar próf. Rkh., Einarssonar, Sigvaldasonar langalífs, Gunnarssonar. Jón Einarsson var bróðir Gizzurar, fyrsta biskups í lútherskum sið.
Sigvaldi langalíf var tæpar 5 álnir á hæð (~2,30 m.), f. ~1435, litlu minni en Jóhann Svarfdælingur Pétursson, hæðin merkt á stólpa í Vatnsfjarðarkirkju þeirri sem hann var við smíði á 1453 og sást þar á dögum sr. Hjalta Þorsteinssonar (sjá heimildir 1652).
Hér er gert ráð fyrir að rödd, líkt og hæð forfeðranna, hafi gengið í erfðir.
Þau Hólmfríður urðu foreldrar þriggja prófasta, þ.á.m. Jóns sagnaritara í Hítardal, föður Finns biskups og þekktar ættir komnar frá hér og í Danmörk, m.a. Finsen og Topsö. Hannes biskup Finnsson var faðir Þórunnar móður þeirra Steingríms skálds og Árna landfógeta Thorsteinson föður Árna tónskálds Thorsteinson. (1569). Hann, Hannes biskup, var og langafi Nóbelsverðlaunahafans í læknisfræði, Níels Finsen (1860-1904).
,,Eftir lát Jóns biskups Vídalín gegndi sr. Jón Halldórsson biskupsstörfum í tvö ár. Hann var kosinn biskup að sér fjarstöddum við útför Jóns Vídalin og aftur á AlþingiWikiwand (opnast í nýjum flipa) sumarið eftir af prestum úr Skálholtsbiskupsdæmi og ætlaði hann að taka því og fara utan með Eyrarbakkaskipi til að sækja vígslu en þá fréttist að séra Jón Árnason, prófastur í StrandasýsluWikiwand (opnast í nýjum flipa), ætlaði að sigla til að sækjast eftir biskupsembættinu og hætti hann þá við utanferð þótt margir hvettu hann til að fara". (Tekið af Wikimedia).
Hólmfríður var systir sm. Vigfúsar sem í Íslandsklukku HKL vill pretta Helgu Magnúsdóttur í Bræðratungu. (Ísl. æviskrár).