Ei varð jökulgangan greið
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Ei varð jökulgangan greiðguðsmönnunum tveimuroní dal þeim eftir beiðóguðlegur heimurhugsuðu þar hefðist viðhuldumannaþjóðinsem tryði á það leiða lið:Loka, Þór og Óðin.
Dals í botni Þóris þursþrjóta fundu hellivissu ei af valdi hvurs-virki mátu spelli:gnípur hrjóstur, gljáuð skörðGeitlands, hulin svelli,en hvergi grös né græna jörðþau Gretti´er héldu á velli.
Björn með mælitæki og tóltakmörk lands réð kannaei fann merki og engin bólútilegumanna.Í öðrum árgangi' Íslendingsandmælir Hákon þessu:vart mat álit vitleysingsvirði einnar messu.
Heimildir og samhengi
Gils Guðmundsson, Gestur lV, 159: Leitin að Þórisdal, úrdráttur.
Tveir ungir prestar, Helgi Grimsson á Húsafelli og mágur hans, Björn Stefánsson á Snæfoksstöðum í Grímsnesi fóru könnunarferð 1664 til að kanna sannleiksgildi sagna um útilegumannabyggðir. Lögðu þeir á Langjökul ásamt tveimur fylgdarmönnum að leita að hinum nafntogaða Þórisdal.(Grettissaga).HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Ferðasaga þeirra ber með sér að þeir hafa engan veginn verið vantrúaðir á tilvist útiegumanna heldur gert ráð fyrir að þeir fynndu byggðir þeirra og að þeir væru heiðnir. Átti ferðin að vera hvort tveggja í senn, landkönnun og trúboðsleiðangur.
Tilvísanir:
2. árgangur Íslendings 12. apríl 1861, svargrein séra Hákonar Espolín til Björns Gunnlaugssonar, sem ritað hafði grein 14. mars 1861 í sama blað um ferðir sínar um hálendið 1831 til 1843 vegna kortlagerðar.
Sjá 1846, sem gefur vísbendingu um að venjulegt fólk hafi ekki álitið Björn Gunnlaugsson vera eins og það, en hann kenndi sér sjálfur til stúdentsprófs og hirti háskólaverðlaun í þeirri grein sem Íslendingar fengu jafnan undanþágu frá þar, stærðfræði.