Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1663
1663
1663

Corfiz Ulfeldts í Kaupinhafn

Hljóðbrot0:00

Lag Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

CCorfiz Ulfeldts í Kaupinhafnkroppsbílæti partamá ei Leonoru nafnnefna hvað þá arta.

Glúmur Gylfason · 1663

Heimildir og samhengi

(Skýring vísu: Lima í sundur líkamsbrúðu Corfiz Ulfeldt / ei (hvorki) má virða né nefna Leonoru á nafn.
Leonora var eiginkona C.U. og hálfsystir Friðriks III.).

Corfiz Ulfeldt, tengdasonur Kristjáns IV., mágur Friðriks III. kóngs, gerðist landráðamaður með því að ganga Svíum á hönd með fúlgu dansks fjár og sat m.a.s. þeirra megin í friðarsamningum eftir að Danir töpuðu stríðinu 1656-60.
Svía sveik hann líka og dæmdur þar til dauða. Flýði þá aftur til Dana og þau hjón sett í fangelsi á Borgundarhólmi. Þaðan flúði hann yfir sundið til Prússa og bauð Friðriki l. dönsku krúnuna ef hann styrkti sig til valdaráns í Danmörk. Friðrik l. kom því góða boði til nafna síns í Kaupmannahöfn, sem varð til þess að C.U. var dæmdur til dauða. Hann náðist þó ekki, en aftakan fór þó fram 1663 með þeim táknræna hætti sem annállin segir frá hér á eftir.
Kona Corfiz Ulfeld, Leonora Kristjánsdóttir lV. (1621-1698), sat fangi í Bláturni til 1685.

Vatnsfjarðarannáll yngri III, 136: ,,Skeði executio Corfiz Ulfelds í Kaupinhafn. Hans bílæti gert og afhöfðað upp á slotsplássi og síðan í stykki parterað, höfuðið á stöng sett hjá ráðhúsinu, en partarnir sinn um hvert port fluttir, hans signet sundurbrotið etc. og þetta allt af böðlinum gert, það despect yrði því meira er hann náðist ei sjálfur, þar hann var flúinn. Skeði þetta hinn 13. Novembris”.

Hannes Þorsteinsson telur að annálshöfundur, Guðbrandur Jónsson frá Vatnsfirði (1636), hafi verið sjónarvottur að þessari málamyndaaftöku.
Eiginkona C.U., Leonora Kristjánsdóttir IV. sat fangi í Bláturni 1663-1685. Sjá 1682.

Vefurar-ar.facebook.com (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Háðungarminnisvarði:

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Neðanskráð slóð á við 6. mynd hér að neðan.
Vefurcalciomercato.com (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1662Brottrekstri Torfa Bjálki rifti1664 →Hólmfríður með Halldóri fór