Árið 1641

t.d.

2 vísur frá árinu 1641
  1. 1641Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Hvítra- nýr er hvala vandi

    í Hvalfirði til að mynda
    þá má sjá frá þurru landi
    í þaranum éta og synda.

    Skarðsárannáll I, 262: ,,...undarlegir og sérlegir hvalfiskar í Borgarfirði og Hvalfirði, alhvítir á lit sem stór útselur að vexti; sá í Hvalfirði sást var þar frá krossmessu um vorið og fram á jólaföstu, það menn…

    Hlusta
  2. 1641Lag: Fyrr var oftr í Koti kátt

    Kætast Skál- og Kols- nú holt

    konur urðu léttar
    foreldranna stórt er stolt
    stúlkur fæddust nettar.
    Seinna´um aðra stendur styr
    staðföst tók til varna
    og báðar urðu frægar fyr'ir
    fæðing sinna barna.

    Bornar í heim: Ragnheiður Brynjólfsdóttir í Skálholti 8. september og Hólmfríður Hannesdóttir í Kolsholti 30. nóvember. Þeirra getið hér m.a. 1664 og 1661. Um Ragnheiði vísast til 1661, 1666 og 1667 á þessari vefsíðu.…