Árið 1773

t.d.

3 vísur frá árinu 1773
  1. 1773Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Magnús Ketilsson kunni sanna:

    ,,kramin, hungruð, flöt
    ekki litum upp til manna
    er ætu hrossakjöt”.

    Magnús Ketilsson (1732-1803), háskólamenntaður sýslumaður Dala og stórbóndi í Búðardal á Skarðsströnd var stofnhluthafi í Innréttingunum í Reykjavík, enda systursonur Skúla Magnússonar. Hann var driffjöður í…

    Hlusta
    Magnús Ketilsson, sýslumaður
  2. 1773Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Rekinn Hoff, af Hólastól

    hann þótt kynni prenta:
    ,,en Hrappseyingur höfuðstól
    hlyti þurfa að renta.”
    Etur skáld það úti frýs,
    öllu dirfist voga:
    missti prest og Paradís,
    próförk les hjá Boga.

    Þegar Gísli Magnússon (1712-1779), Hólabiskup 1755 til dd., tók til að prenta Pontoppidans barnaspurningar (Ponta) á Hólum eftir að hlé hafði orðið á prentun í harðindum 6. áratugarins, þá varð Eiríkur Hoff Guðmundsson,…

    Hlusta
    Atli - prentmunur frá Hrappsey 1780
  3. 1773Lag: Sá frjáls við lögmál

    Almenna mátu allt of lágt

    og ætluðu' að stjórnin gleypti
    en kóngur launaði lambið grátt
    og lúmskur út þá keypti.

    Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 175 - úrdráttur: Í ágústlok mat aðalfundur Almenna verslunarfélagsins öll þess verðmæti á 286.264 rd. Hafa eigendur reynt að hafa þessa tölu svo lága til að sýna konungi…

    Hlusta
    Kristján VII.