Árið 1774

t.d.

2 vísur frá árinu 1774
  1. 1774Lag: Dvel ég í draumahöll

    Er Viðeyjarkirkja kom upp dýr

    kóngur í búð má púla
    og hvergi finnur heilar brýr
    í höfuðbókum Skúla
    Stofan þúsund kostar kýr
    klerkssonar frá Múla
    Hákon gamli í gröf sér snýr:
    ,,Gizzur! Höggðu Skúla".

    Konungsverslunin síðari o. fl. Wikipedia: ,,Viðeyjarkirkja er kirkja í Viðey við Reykjavík. Kirkjan var hlaðin úr steini á árunum 1767 til 1774 og var að einhverju leyti notast við grjót sem gengið hafði af þegar…

    Hlusta
    Viðeyjarkirkja og StofaSkúli Magnússon, fógeti+4
  2. 1774

    Barna heyrði gala görn

    gekk til altaris á Tjörn
    það varð síðust Tomma törn
    taka sitt líf sem hungursvörn.

    Höskuldsstaðaannáll, Ísl. annálar IV, bls. 551: ,,Örbirgur barnamaður, Tómas, hengdi sig í miðri viku. Hafði næsta sunnudag fyrir meðtekið sakramentið eftir hans begæring af presti". Neðanmáls: ,,Tómas var Þórðarson og…

    Hlusta
    Tjarnarkirkja, Vatnsnesi fjárhús Ásbjarnarstaða  2016Sauðadalsá 1947+1