Rekinn Hoff, af Hólastól
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Rekinn Hoff, af Hólastólhann þótt kynni prenta:,,en Hrappseyingur höfuðstólhlyti þurfa að renta.”Etur skáld það úti frýs,öllu dirfist voga:missti prest og Paradís,próförk les hjá Boga.
Heimildir og samhengi
Þegar Gísli Magnússon (1712-1779), Hólabiskup 1755 til dd., tók til að prenta Pontoppidans barnaspurningar (Ponta) á Hólum eftir að hlé hafði orðið á prentun í harðindum 6. áratugarins, þá varð Eiríkur Hoff Guðmundsson, d. ~1790, yfirprentari 1766, prestssonur frá Hofi í Vopnafirði, sbr. nafnið Hoff. Hann þótti brokkgengur og var látinn hætta 1768, en fékk þá Ólaf Olavius (~1741-1788) til að hvetja (tæla) Boga Benediktsson (1723-1803) í Hrappsey til að kaupa prentsmiðju 1773 og varð þar yfirprentari. (Annálar V, 77).
Þar fékk sr. Jón þjóðskáld Þorláksson (1744-1819) vinnu við prófarkalestur eftir að hafa misst prestinn öðru sinni fyrir barneign með Jórunni Brynjólfsdóttur sm. í Fagradal Bjarnasonar ríka á Skarði (1704) Péturssonar.
Innan árs var hann kvæntur dóttur Boga prentsmiðjueiganda og bjó með henni þar nærri, uns hann náði uppreisn öðru sinni 1788 og hlaut Bægisá í Öxnadal að brauði. Fluttist þá einn þangað.
Jón Þorláksson þýddi m.a. kvæðabálk J. Miltons, Paradísarmissi. Faðir Jóns, Þorlákur Guðmundsson, kemur hér við sögu 1741 og 1748.
Í Hrappseyjarprenti var eingöngu prentað veraldlegt efni enda hafði Hólaprent einkaleyfi á Guðsorði.
M.a. þess vegna er Hrappseyjarprentverkið tákn upplýsingarstefnunnar, en forkólfurinn, Magnús Ketilsson starfaði í hennar anda.
Tilvísanir: Saga frá Skagfirðingum I, 97, 169.
Sverrir Kristjánssn, Gamlar slóðir, bls. 11.