Magnús Ketilsson kunni sanna:
Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903
Magnús Ketilsson kunni sanna:,,kramin, hungruð, flötekki litum upp til mannaer ætu hrossakjöt”.
Heimildir og samhengi
Magnús Ketilsson (1732-1803), háskólamenntaður sýslumaður Dala og stórbóndi í Búðardal á Skarðsströnd var stofnhluthafi í Innréttingunum í Reykjavík, enda systursonur Skúla Magnússonar.
Hann var driffjöður í prentsmiðjurekstri Boga Benediktssonar í Hrappsey frá 1773. Þar gaf hann út Islandske Maanedstiderne, fyrsta íslenska tímaritið, sem varð þó að vera á dönsku af því að áskrifendur voru flestir Danir. Útgáfan stöðvaðist í árslok 1776 og telur Þorkell Jóhannesson að bersögli Magnúsar hafi í Kaupmannahöfn þótt of mikil á þeim tíma, en prentfrelsi varð ekki í Danmörk fyrr en 1849 og 1855 á Íslandi.
Þá annaðist Magnús útgáfu íslensks lagasafns og konunglegra tilskipanna 1450 til 1730.
Einnig ritaði hann og gaf út leiðbeiningar til bænda um ræktun og ræktaði 18 tegundir grænmetis auk byggs og hafra, reyndi rúg, hveiti og tóbak, en það tóks ekki.
Pésa ritaði Magnús um að hrossakjöt skyldi nýtt til matar í neyð og fitan til ljósa, en þar var við vanans ramma reip að draga og hlaut ákúrur af prófasti og biskupi og sm. Halldór Jakobsson sendi kæru til kirkjustjórnarráðsins í Kaupmannahöfn, en Danir reyndust þá ekki telja hrossakjöt jafn hættulegt og landinn.
(Um sm. Halldór, sjá 1756, 1775 og 1788).
Síðast en ekki síst skal nefna bókina ,,Stiftamtmenn og amtmenn á Íslandi 1750 til 1800", sem inniheldur æviskrár þessara manna og fjallar um stjórnmál tímabilsins.
Stjórnin mat ritstörf Magnúsar Ketilssonar og búnaðarframkvæmdir hans svo, að gaf honum eftir mestan hluta sýsluafgjaldanna um 12 ár í viðurkenningarskyni.
(Heimild m.a. formáli Þorkels Jóhannessonar að amtmannatalinu í útgáfu Sögufélagsins 1948.).
Í bók Bjarna Harðarsonar, Króníka úr Biskupstungum, bls. 112, er haft eftir Jóni Guðmundssyni (1859-1927), b. og fræðim., Reykjum, Lundarreykjadal, að lagt væri að jöfnu að bera út börn og borða hrossaslátur, en þetta tvennt var nefnt í sömu andrá við kristnitökuna 999.
Sjá: AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar, bls. 77: ,,Helgi Einarsson úr Þykkvabæ var fátækur bóndi, og höfðu menn það eitt út á hann að setja, að hann lagði hrossakjöt í heimili sitt til lífsviðurværis sér og sínum. Litu menn niður á hann fyrir þessi sjálfsögðu bjargráð og mun ég hafa verið einn meðal þeirra heimskingja". (Á við árið 1881).
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)