Engu trúði Óli á Grím
Engu trúði Óli á Grímólman glæpamanninngabb og lygar, galdrarímgrátt lék stiptamtmanninn.
Heimildir og samhengi
Sr. Pétur Guðmundsson, Annáll 19. aldar, l, bls. 63:
,,Grímur Ólafsson, prests að Kvíabekk, Jónssonar ... hafði verið í skóla að Hólum og ætlaði þá tvisvar eða þrisvar sinnum að kveikja í skólahúsinu. Síðan fýsti hann að nema galdur og ætlaði eitt sinn að vekja upp föður sinn. ... Síðan flæktist Grímur vestur á Höfðaströnd og stal þar peningum frá Páli bónda í Stórubrekku ... en næstu nótt stal hann frá Jóni Konráðssyni, bónda í Gröf. ... náðist hann eigi í það sinn, en í þeirri ferð týndi hann töfrablöðum sínum. Þar á var ritinn samningur við fjandann; hét hann honum sjálfum sér þar í og elzta barni sínu. Skólapiltar tveir fundu blöð þessi og færðu skólameistara ... Var svo skólaveru hans lokið. Síðan var hann dæmdur til tukthússþrælkunar, en er hann kom til Reykjavíkur bar hann sig aumlega fyrir stiptamtmanni, svo hann hrærðist til meðaumkunar ... og mælti með honum svo hann var náðaður með konungsbrjefi og gefin aptur ölmusa í Reykjavíkurskóla. Var hann þar þó litla hrið vegna óráðvendni sinnar. Kom stiptamtmaður honum þá að verzlun í Reykjavík og mæltist það eigi vel fyrir. Þetta mun hafa verið laust fyrir aldamótin. ... Afskifti stiptamtmanns af málum Gríms urðu óvildarmönnum hans að vopni, svo sem Loðvík Erichsen, er Espólín segir að á jarðamatsferðum sínum hafi uppgötvað allt það er hann mátti, er til tjóns gæti orðið Ólafi stiptamtmanni og var honum eitt með öðru fundið til saka meðhald hans með Grími".
Árið 1803 játar Grímur ásamt konu sinni tilraun til manndráps með íkveikju og eitri og með ,,skaðlegum lyfjum að fyrirkoma fóstri, því er hann hafði getið í hór með ógiptri stúlku þar í bænum".