Þá Snorri bjóst af stað frá Stað
Lag Yfir kaldan eyðisand
Þá Snorri bjóst af stað frá Staðstefndi að Húsafelliþar niður drísildjöfla kvaðuns dó í hárri elli.
Heimildir og samhengi
Snorri Björnsson, prestur, f. 3. okt. 1710 Höfn undir Hafnarfjalli, d. Húsfelli 15. júllí 1803. Prestur þar frá 1757, en áður á Stað í Aðalvík frá 1741.
Borgfirðingar trúðu að hann hefði á Hornströndum aflað sér kunnáttu til að fást við hvers konar drauga og sendingar, sem enn voru mjög á kreiki á 18. öld.
,,Var oft leitað til Snorra að liðsinna fólki sem taldi sig verða fyrir ásókn drauga og gekk honum oft vel að telja í það kjark og „lækna“ það og trúðu þá margir því að hann hefði kveðið niður draugana. Var sagt að hann hefði kveðið niður sjötíu eða áttatíu drauga á Húsafelli, ýmist í Draugarétt eða DraugagiliWikiwand (opnast í nýjum flipa)ð".
(AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa))
Þá var séra Snorri talinn kraftaskáld og mörgum sögum fer af líkamlegum kröftum hans.
Tilvísun: Þórunn Valdimarsdóttir: ,,Snorri á Húsafelli."
Halldór Laxness, Brekkukotsannáll, bls. 59: ,,Lúka þar flestir skilríkir menn upp einum munni að skjaldan hafi í Borgarfirði klerkur lifað er sjómaður væri betri, heitari trúmaður, meiri tóbaksmaður, saungmaður, skáld og járnsmiður en hann".