Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1803
1803
1803

Á mölinni eiga margir bágt

Hljóðbrot0:00

Lag Þrútið var loft og þungur sjór

ÁÁ mölinni eiga margir bágtog mæðan orðin slíkað ,,Seltjarnarnesið, lítið og lágt”,sig lögum úr segir frá Vík.

Glúmur Gylfason · 1803

Heimildir og samhengi

Reykjavík varð sérstakt lögsagnarumdæmi, bæjarfógeti skipaður Rasmus Fridensberg.
Vík hafði aðeins verið kvosin sem kóngur fékk Innréttingum Skúla Magnússonar til umráða 1752, en nú var þeim lokað, og seldar veturinn 1802-1803.
Reykjavík gekk enn undir heitinu Vík og var þá átt við kvosina sem kaupstaðnum út var mæld 1786. ,,Að vestan: Grjótabrekka frá Ullarstofutúni allt til sjávar; að sunnan norðurendi Tjarnarinnar og að austan Víkurlækur frá Tjörn til sjávar. ...Enn fremur Effersey og spilda úr Arnarhólslandi". (Árbækur Reykjavíkur, JH, bls.4). En nú var lögsagnarumdæmið stækkað og bættust m.a. við Þingholt, Skuggahverfi og Grjótaþorp.

Eftir þetta og allt til 1931 stóð í stappi milli Reykjavíkur og Seltjarnarness um framfærslu þurfamanna, en margir unnu í Vík en bjuggu í Seltjarnarneshreppi sem auk Nessins náði yfir Kópavog og Skildinganes í Skerjafirði.
Konungleg tilskipun um tvo lögregluþjóna í Reykljavík.

Skv. Árna Óla var það líka verslunarfrelsið 1788 sem leiddi marga til Reykjavíkursvæðisins í atvinnuleit.
Í mars 1806 lét Bæjarfógeti lesa auglýsingu af prédikunarstól Dómkirkjunnar, sem skipaði öllu utansveitarfólki að hafa sig burt fyrir fardaga og bannaði húsráðendum að hýsa utansveitarfólk án síns samþykkis.
(Árni Óla, Reykjavík fyrri tíma, 514. Sjá nánar á bls. 513).

Það var vegna kvennamála sem Þórbergur Þórðarson neytti gáfu sinnar og orti meinlega um íbúa Seltjarnarness, m.a. með þeim hætti sem hér og oftar er tönnlast á síðan.
Seltirningar kunnu hvað best að haga seglum og bjuggu og búa enn við ,,beggja skauta byr við Nesið" sem þá þótti kostur.
Þórbergur lýsir hrapallegri reynslu sinni sem kokkur á smáfleytu.
Skipstjóri flaggskips íslenska flotans, Gullfoss, var bróðir stúlkunnar á Seltjarnarnesi. (1899).
Eljari skáldsins varð biskup Íslands.
Fengum svo fyrrnefnt Seltjarnarneskvæði og Bréf til Láru.

Úr Sögu Reykjavíkur, Bærinn vaknar, 101: ,,Framnesingar voru forystumenn og brautryðjendur við Faxaflóa um aldamótin (1900). Þar var hetja á hverjum bæ, höfðu mikið umleikis, ... dugnaðarmenn sem létu sér fátt fyrir brjósti brenna".

Úr endurminningum Jón frá Hlíðarenda, bls. 19: ,,Ég kveið fyrir þessum skiptum , að fara til Þorlákshafnar og eiga þar við beljakana og berserkina af Eyrarbakka - en allt fór það vel eigi að síður. ...En ég gat leiðbeint þeim við að haga seglum, sem þeir kunnu alls ekki áður. Ég hafði róið tvær vorvertíðir suður á Seltjarnarnesi og lærði þar að haga seglum, en þá var í Þorláskhöfn mjög ófullkomið seglalag og allur sá útbúnaður ófullkominn."

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Kristján IV. keypti Vík af Guðrúnu Magnúsdóttur, ekkju sm. Narfa Ormssonar, sem þar bjó og galt fyrir þrjár jarðir: Bakka á Kjalarnesi, Kiðjaberg í Kjós og Laugarvatn í Árnessýslu. Þetta staðfestir konungsbréf frá 1616, sem varðveitt er í Árnasafni. Afsal 1615. Sjá 1613.
Heimildir og tilvísanir:

Gylfi Kristinsson, Vesturbæjarblaðið des. 2012, bls. 18;
Þór Magnússon, Vesturbæjarblaðið júlí 2010, bls. 10.
Skjalminjastofnun.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1803

  • Þá Snorri bjóst af stað frá Stað
  • Í nýársmessu nýtt bar til
  • Engu trúði Óli á Grím
← 1802Bringukolls fann klerkur þjóf1803 →Þá Snorri bjóst af stað frá Stað