Daða í Snóksdal kænan kann
Lag Skapari stjarna, herra hreinn
Daða í Snóksdal kænan kannkóngur að brúka, lútherskan,Jón biskup Arason svo með sannsöng á h´ann allrahæst páfans bann.
Heimildir og samhengi
Guðbrandur Jónsson, Herra Jón Arason, frá bls. 219: ,,Með Daða Guðmundssyni kemur hinn eini maður í landinu sem sýnist jafnoki herra Jóns um karlmennsku og dirfsku og var það hinum lúthersku happ. ...hafði Daði í öndverðu verið dyggur fylgismaður herra Ögmundar og andstæðingur siðbyltingarinnar, (úrdráttur): ...en útistöður vegna lífernis hans teygðu hann í flokk siðbyltingarmanna".
Eftir að hafa birt Daða þrjár áminningar og forboðað hann bréflega, en bréfin sundur rifan af heimamönnum Daða og sendimenn Jóns biskups hraktir ,,...var herra Jóni nóg boðið og ...bannfærði Daða hátíðlega í Hóladómkirkju 2. janúar 1549. ...12 prestar ... báru allir logandi kerti í höndum ...með hringdum klukkum og steyptum logum".