Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1549
1549
1549

Martein fjötur færðu á

MMartein fjötur færðu áfrelsi Jón hann sviptivanheilagur vildi fávöld í Skálholtsstifti.

Glúmur Gylfason · 1549

Heimildir og samhengi

Í septemberlok lét hans heilagleiki, herra biskup Jón Arason, syni sína, Ara og Björn, fara með flokk manna að nývígðum biskupi (superintendent) Skálholts, Marteini Einarssyni, við komu hans til Íslands, stöddum á Staðastað, og geymdi hann fanga veturlangt nyrðra, fyrst á Hólum, en síðan á Grund í Eyjafirði eftir stroktilraun. Hafði hann síðan sem skotspón fremstan í herfylkingu til Skálholts þar sem tóku biskupssetrið baráttulaust 1550 enda hefði Marteinn fallið fyrstur ef til orrustu hefði komið. ,,Vanheilagur", sbr. athafnir herra Jóns gegn mönnum og dýrum í Bjarnarnesreiðum 1545 og1547, sjá þar. Sama eðlis eru athafnir hans heilagleika, herra Jóns Arasonar, í Skálholtskirkju, þegar gróf þar upp lík biskupsins, Gissurar Einarssonar, og dysjaði utangarðs og endurvígði síðan kirkjuna. Eftir þær aðfarir og Bjarnarnesreiðar hefur ýmsum þótt meiri þörf á þriðju kirkjuvígslunni, en á öllum þeim frímerkjum, steindu rúðum, mósaikmyndum, minnismerkjum og líkneskjum sem minna eiga á þennan herskáa páfans þegn - þó ekki í Hornafirði.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1549

  • Daða í Snóksdal kænan kann
← 1548Keisara skrifaði biskup bréf1549 →Daða í Snóksdal kænan kann