Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1550
1550
1550

Sýtti ei Ari, en sjá

Hljóðbrot0:00

Lag Gunnars Reynis Sveinssonar - texta hans breytt með leyfi

Lag Blessuð sólin elskar allt

SSýtti ei Ari, en sjáBjörns frá börnum smáhvarflað eigi hugur getur.En hefðu aðrir staðið sigsvo miklu, miklu, miklu, miklubetur?

Dú bí dú bí dú ...

Böðli gengur stirtnæstum ekki neitthann fær að kenna' á því í voref það gengur ekki í vorog ekki næsta sumarþá heppnast allt saman í haustÖRUGGLEGA.

Enginn heyrði kveinenginn heyrði vein.Biskup hvergi böðul letur:,,Oh! höggðu, Sveinki,höggðu, Sveinkimiklu, miklu, miklu, miklubetur”.

Páfans besti biskup varog barðist fyrir trúnaen í Bjarnanesi beljurnarbaula á hann núna. .

Glúmur Gylfason · 1550

Heimildir og samhengi

7. nóvember hálshöggnir í Skálholti Jón Hólabiskup Arason, f. um 1484, og tveir af þremur eftirlifandi sonum hans: Björn, sem munnmæli segja að hafi kveinkað sér með orðunum: ,,Ó, börnin mín, ung og smá", og Ari, sem lét sér hvergi bregða.
Höggstokkurinn var færður á nýjan stað eftir hverja aftöku.

,,Dönsk öxi stendur á hálsi Jóns biskups Arasonar um aldur og ævi, og það er gott. Guði sé lof hann hafði unnið til allra þeirra sjö högga sem til þurfti að losa frá bolnum þetta gráa höfuð...". (Halldór Laxness, Eldur í Kaupinhafn: Snæfríður talar við Gullinló).

Í byrjun næsta árs drápu norðlenskir útróðrarmenn böðulinn með því að hella upp í hann bráðnu biki eða blýi. Ber annálum ekki saman um hvort var.
,,Veit ég það, Sveinki," á Jón biskup að hafa sagt við prest sem minnti hann á að annað líf biði hans.
Gálgahúmorinn: ,,Höggðu betur", er víða að finna í frásögnum annála af aftökum enda axir bitlitlar og böðlar torfengnir. Aftaka Björns þótti takast illa en sagt er að höfuð Jóns biskups hafi farið af í þriðja höggi. Sjá t.d. Barna-Björn 1602 og 1680 .
(Ýmsar heimildir).

Við komu herskipa ári síðar var réttur settur á Oddeyri 15. júní1551 og þeir feðgar dæmdir til dauða fyrir landráð, en herra Jón hafði kært Kristján III. fyrir Karli V. keisara og beðið um hernaðaraðstoð og þar áður óhlýðnast utanstefnu kóngs.
Næsta dag, 16. júní 1551, samþykkti prestastefna á sama stað kirkjuskipan Kristjáns III., að viðstöddum knektum, svo sem verið hafði á Þingvöllum 1541. (Ýmsar heimildir).

Árni Daníel Júlíusson á bls. 261 í Sögu LIX - l - 2021: ,,Draugur Jóns Arasonar Hólabiskups og hálshöggvins líkama hans hefur varpað löngum skugga á söguvitund okkar Íslendinga".

Harald Gustafsson á bls. 109 í Ísl. söguþingið, Ráðstefnurit II, segir að það litla sem skrifað hafi verið um aldirnar 1500 til 1800, þ.e., áður en þjóðernisrómantíkin varð allsráðandi, ,,hafi verið mótað af þeirri tímaskekkju að skoða samskipti Íslendinga og Dana úr sjónarhorni nútíma þjóðernisvitundar og túlka söguna sem baráttu milli þessara þjóða".

Lag Gunnars Reynis Sveinssonar syngur Margrét Stefánsdóttir, bóndi á Hvoli í Ölfusi, en texti tónskáldsins, ,,Maður hefur nú", liggur til grundvallar, heimfærður upp á þennan atburð.

Um atferli herra Jóns biskups við kýr í Skaftafellssýsu 1547, sjá þar.

Myndir

Einnig frá árinu 1550

  • Kóngur páfi orðinn er
  • Hann oss um það telur trú
  • Með bjórglas einn við bar ég sit
  • Yfirlit 16. aldar A
  • 16.öld - yfirlit B framhald
← 1549Daða í Snóksdal kænan kann1550 →Kóngur páfi orðinn er